Difrax non spill mál mjúkur stútur 250 ml - tveir litir

Difrax stútkannan með mjúkum stút er fullkomin sem fyrsta drykkjarmál barnsins. Málið er hentugt frá sirka 6 mánaða aldri. Vegna hönnunar málsins þá rennur vökvinn út um stútinn þegar því er haldið í láréttri stöðu. Þar með er drykkjarstaðan ávallt þæginleg, þar sem barnið þarf ekki að reigja höfuðið aftur.

Vörunúmer: 10148797
+
2.795 kr
Vörulýsing
  • Á málinu eru færanleg handföng og mjúkur stútur sem gerir breytinguna frá brjóstagjöf/pelagjöf yfir í það að drekka úr máli/könnu auðvelda.
  • Í loki málsins er sílikonstykki sem gefur tvo möguleika á flæði vökvans - hægt flæði og hraðara flæði. Þannig er hægt að stilla málið með því að taka mið af drykkjarhraða barnsins. Ennfremur er flæðið jafnt og stöðugt.
  • Málið er “non-spill”, þar sem stúturinn er hannaður á þann hátt að ekki sullast eða hellist úr honum.
  • Difrax vörurnar eru þróaðar í samvinnu við læknateymi sem m.a. samanstendur af barnalæknum, talmeinatæknum, tannlæknum, mjólkursérfræðingum og næringarráðgjöfum.
  • Allar Difrax vörurnar eru BPA fríar.

Tengdar vörur