Lyfjaskápur með tveimur lyklum

Öryggur Lyfjaskápur með 2 lyklum og hillu. Fullkomin á öll heimili. Það er hilla í miðjunni sem er laus og hægt er að fjarlægj. Ennfremur er hilla í hurðinni sem er hægt að færa til (sjá mynd). Stærð: Breidd 18 cm., Lengd 26,5 cm, Hæð 24,5 cm,

Vörunúmer: 10141146
+
10.298 kr
Vörulýsing

Hér eru nokkur góð ráð um örugga geymslu lyfja:
Veljið lyfjum, sem geyma á í kæli, öruggan stað í kæliskápnum. Gætið að því að hitastigið sé ekki of lágt og lyfin mega alls ekki frjósa

  • Geymið öll lyf, sem geyma má við stofuhita, á einum stað þar sem ekki er hætta á raka
  • Geymið öll lyf þar sem börn hvorki ná til né sjá
  • Geymið lyf gjarnan í skáp sem hægt er að læsa
  • Forðist að sólarljós nái að skína á lyf
  • Takið reglulega til í lyfjum heimilisins

Ef þessum ráðum er fylgt dregur það úr hættu á að börn eða aðrir taki inn lyf fyrir slysni. Jafnvel litlir skammtar af algengum lyfjum geta valdið alvarlegri eitrun hjá börnum og gæludýrum. 

Ekki geyma lyf í náttborðsskúffunni, veskinu, eldhússkápnum eða á öðrum stað þar sem auðvelt er að ná til þeirra – nema það sé nauðsynlegt af heilsufarsástæðum. Röng geymsluskilyrði, t.d. of hátt hitastig, geta með tímanum haft áhrif á gæði lyfja.

Heimild: Lyfjastofnun.is

Tengdar vörur