Formúlan hentar vel þeim sem vilja matta áferð sem helst mött allan daginn. Kosturinn við farðann er auk þess sá að áferðin þyngir ekki húðina heldur er farðinn sérlega léttur.
- Micro púðuragnir sjá til þess að farðinn helst mattur allan daginn.
- Örfínar „blur“ púðuragnir sjá til þess að áferð húðarinnar verður mjúk og jöfn.
- Sýnilegar svitaholur, ójöfnur eða ör hverfa á augabragði og sjást ekki á meðan farðinn er á húðinni.
- Litirnir eru sex talsins svo það er auðvelt að finna þann sem hentar hverri húðgerð.