MyHeritage DNA sjálfspróf

Hvernig mun DNA prófun hafa áhrif á þig? DNA prófið þitt veitir þér þá áhrifamiklu upplifun að uppgötva hvað það er sem gerir þig einstaka/n og komast að því hver þinn uppruni er.  MyHeritage DNA er stolt af því að betrumbæta líf notenda víðsvegar í heiminum.

Vörunúmer: 10160030
+
15.998 kr
Vörulýsing

Hvaðan í heiminum er fjölskylda þín?
Þeir staðir sem fornfeður þínir kölluðu heimili sitt eru kóðaðir í þitt erfðaefni. Í sögulegu samhengi komu þjóðarflokkar frá sömu landfræðilegu svæðunum og draga genin þaðan úr staðbundinni genalaug. Við greinum þitt DNA til að ákvarða hvaða þætti er hægt að áætla að dragi uppruna sinn úr þeim 42 þjóðarflokkum sem genamódel okkar byggir á –það umfangsmesta sem er í boði af DNA prófum í heiminum í dag.

Uppgötvaðu þjóðaruppruna þinn
Þínar MyHeritage niðurstöður innihalda áætlun á þjóðerni þínu: niðurbrot í prósentum á bakgrunni þínum sem sýnir uppruna fornfeðra þinna af þeim 42 þjóðarflokkum sem genamódel okkar byggir á þ.á.m. Japönum, Írum, Ítölum, gyðingum og mörgum fleirum.
Þú munt finna lista af svæðum þaðan sem fornfeður þínir komu, beggja vegna fjölskyldu þinnar, ásamt prósentutölum af DNA þínu frá hverju svæði.

Hvern munt þú uppgötva?
Við leitum að fólki sem deilir sama erfðaefni og þú: ættingjum þínum. DNA tækni okkar leiðir í ljós þá prósentutölu á erfðaefni sem þú deilir með ættingjum þínum sem sýnir þá hversu skyld þið eruð. 

Þú getur komist í samband við nýfundna ættingja til að læra meira um fjölskyldu þína og uppgötvað sameiginlega fornfeður.

Tengsl við nýfundna fjölskyldu
MyHeritage DNA Matching er öflugt tól sem notar þitt erfðaefni til að aðstoða þig við að finna ættingja þína. Okkar tækni ber þín DNA gögn saman við DNA gögn annarra og ber kennsl á sameiginlega genauppbyggingu sem gefur til kynna möguleg fjölskyldutengsl. Því hærri sem prósentan er á sameiginlegu erfðaefni því hærri líkur á nánari fjölskyldutengslum.

Þegar þú tekur þitt genapróf með MyHeritage DNA þá geturðu fengið senda DNA svörun við öðrum sem hafa tekið sitt genapróf með MyHeritage ásamt þeim sem hafa tekið DNA próf í gegnum aðrar þjónustur. Við leyfum notendum á öllum öðrum áreiðanlegum þjónustum að hlaða upp þeirra DNA niðurstöðum á MyHeritage sem eykur möguleika þína á að finna fleiri nýja ættingja.

Hvernig virkar DNA/erfðagreiningapróf?

  • Einfalt strok innan úr kinn (ekkert blóð eða munnvatn)
  • Tekur aðeins 2 mínútur
  • Sendu það á rannsóknarstofu okkar í lokuðu umslagi*
  • Fáðu niðurstöður þínar á netinu innan 4 vikna


*ATH. Póstyfirvöld í USA er mjög ströng á því að engar vörur/hlutir mega koma inn til landsins nema sem rekjanlegt bréf og því er mikilvægt þegar bréfið er sett í póst að biðja um á pósthúsinu að bréfið sé rekjanlegt annars er hætta á að umslagið komist ekki á leiðarenda.


Að taka prófið
MyHeritage DNA prófið gerir þér kleift að prófa DNA þitt og fá verðmætar upplýsingar um fjölskyldusögu þína og þjóðaruppruna þinn. Prófið er einfalt strok innan úr kinn (ekki er þörf á munnvatni eða blóðprufu) og tekur aðeins 2 mínútur að framkvæma. Síðan póstleggurðu prófið til rannsóknarstofu MyHeritage til greiningar og innan 3-4 vikna færðu boð um að sjá niðurstöður þínar á netinu.

DNA greining
Þegar rannsóknarstofa MyHeritage móttekur DNA próf þitt fara reyndir tæknimenn persónulega yfir próf þitt með hátækni aðferðum. Á rannsóknarstofunni vinnum við úr erfðaefni þínu, eflum það og þýðum þær líffræðilegu niðurstöður í stafræn hrá gögn. Þegar erfðaefni þitt hefur verið fært í stafrænt form reikna okkar algoritmar út mat á þjóðerni þínu og ákvarða hvaða hlutar af þínu DNA koma frá hvaða hlutum heimsins. Við berum einnig saman þitt DNA og erfðaefni annarra til að finna náskylda og fjarskylda ættinga.

Tækni okkar og staðlar
Í samræmi við staðla iðnaðarins þá notar MyHeritage Illumina OmniExpress-24 flögu sem er með hundruð þúsunda nákvæmlega valinna kanna til að fanga sem mesta magn erfðabreytileika og auðvelda rannsóknir.

Rannsóknarstofan er CLIA-vottuð (á ensku stendur CLIA fyrir Clinical Laboratory Improvement Amendments) sem er staðall sem gefur til kynna, á meðal annarra lykilkrafa, að allir tæknimenn á rannsóknarstofu okkar sem greina erfðaefni MyHeritage notenda hafa náð ákveðnu stigi hæfniskrafna. Rannsóknarstofan er einnig CAP-vottuð sem er hæsta vottun fyrir rannsóknarstofu af þessu tagi í Bandaríkjunum.

DNA prófið þitt er öruggt og unnið í trúnaði
Hjá MyHeritage er öryggi þitt okkur jafn mikilvægt og þér. Við höfum fjárfest í verulegum úrræðum til að tryggja það að DNA gögn þín og persónuupplýsingar séu örugg og varin með margföldum lögum af dulkóðunum.

Öryggisstillingar fyrir DNA svörun eru aðgengilegar fyrir þig. Aðeins þú hefur aðgang að þínum hráu stafrænu gögnum og þú getur beðið um að láta eyða þeim hvenær sem er.


Tengdar vörur