Hvað er melatónín?

Almenn fræðsla Fræðslumyndbönd Svefn

  • melatonin-svefn

Svefnleysi getur verið ýmiss konar. Fólk getur átt í erfiðleikum með að sofna, haldast sofandi eða að svefngæði séu léleg eða óhagstæð. Öllu þessu fylgir oftast mikil dagþreyta. Við förum í gegnum nokkur svefnstig um nóttina og virðast þau öll mjög mikilvæg við að halda góðri heilsu. Eitt efni í líkama okkar kemur mikið við sögu í sambandi við svefninn og það er efnið melatónín.

Um er að ræða hormón sem er framleitt í heilaköngli, sem er lítið eins cm svæði í heilanum. Það er stundum kallað svefnhormón eða dægursveifluhormón þar sem það gegnir svo mikilvægu hlutverki í sambandi við stjórnun á dægursveiflum okkar og svefn/vöku hringrásinni.

Í þessum áhugaverða fræðslufyrirlestri fjallar Guðrún Kjartansdóttir lyfjafræðingur um melatónín.

https://youtu.be/JncgIR4V42E

1350x350_svefn 

Mynd: Ann Danilina frá Unsplash