Naveh Pharma Anti Leg cramps gegn næturkrampa í fótum 50 hylki

Næturkrampar í fótum eru algengt vandamál og eiga sér oftast stað í kálfa eða smærri vöðvum í fótum. Tilhneigingin til að þjást af slíkum krömpum vex með hækkandi aldri. Um 30% þeirra sem eru yfir 60 ára aldri finna fyrir þeim og talið er að þeir leggist á allt að 1 af hverjum 3 yfir 80 ára aldri.

Vörunúmer: 10105685
+
2.856 kr
Vörulýsing

Næturkrampar í fótum valda óþægindum, standa oftast í nokkrar mínútur. Orsakirnar eru skyndilegir og ósjálfráðir samdrættir í einstökum vöðvum eða vöðvahópum.

Líklegar orsakir fyrir vöðvakrampa eru taldar vera:

  • Hypomagnesemía- skortur á magnesíum.
  • Lélegt blóðflæði í fótum.
  • Flestir íbúar hins vestrænaheims fá ekki nægilegt magn magnesíum úr fæði sínu og er talið að 50% sé á mörkum hypomagnesemia (3,4).

Meðferð með magnesíumsöltum hefur einnig reynst vel við meðferð á krampa í fótum hjá verðandi mæðrum (5).

Anti Leg Cramps samanstendur af blöndu af Magnesium Hydroxide, upprunin úr Dauðahafinu ásamt B 6 vítamíni sem eykur upptöku þess og E vítamíni (6) sem þekkt er að uppræti næturkrampa sem orsakast af lélegu blóðflæði (7) og hefur góð samverkandi áhrif með magnesíum (8).

Notkun Anti Leg Cramps bætir líðan vegna næturkrampa í fótum.

Frábendingar: einstaklingar með nýrnasjúkdóma.

Geymist: á köldum og þurrum stað.

Anti Leg Cramps má nota frá 12 ára aldri. Ef gefa á Anti Leg Cramps yngri börnum skal það gert í samráði við lækni. 



Notkun

Skammtastærð: 1-2 hylki á dag fyrir svefn.

Innihald

Magnesium Oxide Monohydrate (úr Dauðahafinu), E vítamín, B6 vítamín (pyridoxine), Silica Dioxide

Tengdar vörur