BIOEFFECT OSA WATER MIST er hugsað fyrir daglega notkun og hentar sérstaklega fólki sem ferðast mikið eða starfar á vinnustöðum þar sem loftið er sérlega þurrt. Það er frábært að hafa OSA Water Mist við hendina til að fríska upp á húðina yfir daginn, en það fer afar lítið fyrir brúsanum í töskunni. Hentar öllum húðgerðum og er án ilmefna.
BIOEFFECT OSA Water Mist 60 ml.
BIOEFFECT OSA Water Mist frískar upp á húðina, veitir henni raka og kemur jafnvægi á hana. Inniheldur hreint íslenskt vatn og orthosilicic-sýru, sem er ein gerð kísils og unnin úr jarðgufu frá háhitasvæðum á Íslandi. Inniheldur einnig hyaluronic-sýru til að veita húðinni þann raka sem hún þarf.
Vörunúmer: 10149317
Vörulýsing
Notkun
Lokið augum og úðið tvisvar til þrisvar yfir andlit og háls. Leyfið húðinni að drekka vökvann í sig og þerrið með hreinni pappírsþurrku ef þörf er á. Endurtakið eins oft og þið viljið.