ChitoCare beauty Face Cream 50 ml.
Dag- og næturkremið er einstök samsetning náttúrulegra afurða úr Norður-Atlantshafi. Kremið ver húðina, er öflugur rakagjafi, eykur teygjanleika og sléttir yfirborð húðarinnar.
Kremið inniheldur SPF 15 sólarvörn og mikilvæg andoxunarefni sem vernda húðina gegn skaðlegum umhverfisþáttum, m.a. útfjólubláum geislum sólar og bláu ljósi frá tölvu- og snjalltækjaskjám. Þessi vörn varðveitir æskuljóma húðarinnar og ver hana fyrir ertingu og ótímabærum skaða.
Frábærir eiginleikar:
• SPF 15 sólarvörn
• Verndar húðina
• Stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar
ChitoCare beauty Anti-Aging Repair Serum 2 ml.
Þessi einstaka samsetning náttúrulegra afurða ver húðina og er öflugur rakagjafi sem stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar. Klínískar prófanir sýna að það dregur úr fínum línum og djúpum hrukkum. Anti-Aging Repair Serum inniheldur lífvirka efnið kítósan og hýalúronsýru sem dregur úr fínum línum og öldrunarmerkjum af völdum áhrifa eins og mengunar og streitu.Serumið endurnærir húðina svo hún öðlast ljóma og unglegri áferð.
ChitoCare beauty Body Lotion 50 ml.
Hágæða líkamskrem hlaðið náttúrulegum og virkum innihaldsefnum sem gefa húðinni aukinn raka, mýkt og ljóma. Kremið gefur húðinni næringu og það inniheldur lífvirkt kítósan með vísindalega sannaða græðandi eiginleika. Það afhjúpar náttúrulega fegurð húðarinnar.