Heilvirkt CBD (full spectrum)
Ráðlögð notkun: Þunnt lag 1-2svar á dag, nuddist vel inn í húðina.
Dr. Kent inniheldur 550mg af FULL SPECTRUM CBD í 100 ml.
Verkferlar og geymsla
CBD innihaldsefnið í Dr. Kent fótakreminu er unnið úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis Sativa L). Kappkostað er að önnur innihaldsefni séu séu unnin með vönduðum og vottuðum hætti. Framleiðandinn skartar m.a. GMP vottun (Good Manufacturing Practise). Ræktun iðnaðarhampsins er GACP (Good Agricultural and Collection Practices) vottuð og útdráttur CBD kannabínóðanna er gerður með koldíoxíðpressun eingöngu án nokkurra aukefna. Framleiðslan er unnin undir stöðugu gæðaeftirliti ISO/IEC 17025 staðals. Fótakremið er fáanlegt í 100 ml. áltúpum og best er að geyma það utan mikillar birtu og hita. Nota skal fótakremið innan sex mánaða eftir opnun. Geymist þar sem börn ná ekki til.
- Athugið að kremið getur litað föt
Framleiðandinn.
Framleiðandi Dr. Kent fótakremsins er PharmaHemp d.o.o. Fyrirtækið hefur ræktað iðnaðarhamp í Slóveníu og framleitt hampolíu í áratugi ásamt því að vera einn af fyrstu framleiðendum CBD snyrtivara í Evrópu. Þær eru um þessar mundir seldar í yfir 60 þjóðlöndum víða um heim. www.pharma-hemp.com
Meira um CBD
CBD hefur verið mikið í umræðu og fréttum víða um heim að undanförnu vegna fjölbreyttra áhrifa sinna til bættrar heilsu. Víðfeðmar undirbúningsrannsóknir gefa sterkar vísbendingar um ýmis jákvæð áhrif af tengingum CBD (cannabinoid) við endókannabínóðakerfið (endocannabinoid system (ECS)) sem verið hefur til staðar í lífríkinu og manninum frá örófi alda. CBD er á meðal innihaldsefna í lyfseðilsskyldum taugalyfjum og í vísindasamfélaginu er almenn viðurkenning á jákvæðum áhrifum CBD á taugakerfið, t.d. kvíða, streitu og svefn ásamt því að virkni á t.d. bólgur og verki er jafnframt þekkt. Unnið er m.a. að fjölmörgum rannsóknum á áhrifum CBD, m.a. á ónæmis- og stoðkerfið. Langt er í frá að allar CBD vörur séu svipaðar. Þar getur m.a. munað um ólíkar ræktunar- og vinnsluaðferðir og sömuleiðis eru alltof mörg dæmi um að raunverulegt magn af CBD sé minna en upp er gefið. Þess vegna þarf að velja framleiðendur af kostgæfni.