Gandur Sárabót minkaolía 50 ml.

Virkar vel á exem og þurra húð. Frábært kuldakrem. Mýkjandi, nærandi og kláðastillandi húðsmyrsl. Gott á þurra og sprungna húð, hentar fólki með exem Hefur reynst vel á sólbruna og skordýrabit. Vallhumall hefur lengi vel verið þekkt lækningajurt á Íslandi, í smyrsl þótti það græðandi og mýkjandi. Klóelfting og haugarfi hafa sömu eiginleika og haugarfinn þykir einnig kláðastillandi. 

Vörunúmer: 10129511
+
3.998 kr
Vörulýsing

Gandur er nafn á vörulínu sem framleidd er úr minkaolíu og íslenskum jurtum.
Minkaolía hefur óvenjuhátt hlutfall af ómettuðum fitusýrum sem gefa henni einstaka eiginleika í snyrtivörum. Hún er græðandi og mýkjandi náttúruleg afurð fyrir húð bæði manna og dýra. Minkaolían sogast hratt inn í húðina og getur þannig hjálpað til við að loka sárum og sprungum sem í kjölfarið gróa hraðar. Í íslenskri flóru eru margar tegundir af þekktum lækningajurtum sem hafa verið nýttar við ýmsum kvillum hjá mönnum og dýrum í gegnum aldir. Við leggjum metnað okkar í að nota handtíndar íslenskar jurtir úr hreinni náttúru í vörurnar okkar.

Innihald

Minkaolía, bývax, haugarfi, vallhumall, klóelfting, lavender, rósmarín kjarnaolíur og E-vítamín.

Tengdar vörur