Kyrrð inniheldur einnig jurtirnar schisandra og sítrónumelissu sem eru taldar hafa slakandi áhrif. Sniðugt er að skipta dagsskammtinum í KYRRÐ þannig að taka B-vítamínin og D-vítamínið fyrri part dags en Magnesíum og jurtablönduna að kvöldi. Það er þó einnig í góðu lagi að taka allan skammtinn á sama tíma.
B-vítamínblanda með C-vítamíni, inósitóli og kólíni, magnesíum, D-vítamín og jurtablanda með schisandra og sítrónumelissu. Næring beint úr náttúrunni sem líkaminn á auðvelt með að nýta.Laus við óþarfa aukefni. Þægilegir dagspakkar sem auðvelt er að taka með sér hvert sem er. Allt í einum pakka: bæði umhverfisvænna og hagkvæmara. Hver poki er 1 dagsskammtur sem inniheldur 5 töflur og hylki. Orka – jafnvægi – viðhald.
- Orka - B-vítamín, C-vítamín og magnesíum stuðla að eðlilegri orkumyndun og vinna gegn þreytu
- Taugakerfi - B-vítamín, C-vítamín og magnesíum stuðla að eðlilegri starfsemi taugakerfis
- Jafnvægi og streita - Rannsóknir á schisandra benda til þess að jurtin stuðli að auknu jafnvægi taugakerfis og vinni gegn streitu
- Slökun og svefn - Sítrónumelissa er talin stuðla að slökun og betri svefni
- 1x D-vítamín
- 1x magnesíum sítrat
- 1x B-vítamínblöndu með C-vítamíni
- 2x jurtablöndu með schisandra og sítrónumelissu
- Öflug blanda B-vítamína stuðlar m.a. að eðlilegri orkumyndun, dregur úr þreytu og stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga-, ónæmis- og hormónakerfis.
- B12, fólat og B6 stuðla enn fremur að eðlilegum efnaskiptum hvað varðar hómósystein en það er amínósýra sem þarf að huga sérstaklega að með hækkandi aldri. Of hátt magn hómósýsteins í blóðinu hefur verið tengt við aukna hættu á hjartasjúkdómum, heilablóðfalli og heilabilun en B12, fólat og B6 stuðla að því að halda magninu innan eðlilegra marka.
- C-vítamín stuðlar m.a. að eðlilegri myndum kollagens, styrkir ónæmiskerfið og taugakerfið, ver frumur gegn oxunarálagi, eykur upptöku járns og dregur úr þreytu.
- D-vítamín stuðlar m.a. að eðlilegri úrvinnslu kalks og viðhaldi beina og tanna , styrkir ónæmiskerfið og stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi.
- Magnesíum kemur víða við í líkamanum og stuðlar m.a. eðlilegri virkni tauga og vöðva, dregur úr þreytu og lúa og stuðlar að eðlilegu viðhaldi beina og tanna.
- Schisandra er talin adaptógenísk jurt sem stuðlar að jafnvægi og vinnur gegn streitu.
- Sítrónumelissa er talin hafa slakandi áhrif og geta bætt svefninn.
Ábyrgðaraðili: Mulier Fortis ehf.