Þessi lína er sérstaklega hönnuð til að meðhöndla húð sem fær bólur. Megininnihaldsefni hennar hjálpa til við að koma jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar. Vörurnar eru bakteríudrepandi og hjálpa til við að halda bólum í skefjum. Vörurnar eru ofnæmisprófaðar og erta ekki. Með því að hreinsa húðina daglega og bera á hana krem við hæfi er hægt að hjálpa húðinni að ná jafnvægi og minnka bólur.
Virkni og árangur vörunnar hefur verið sannreyndur og prófaður af húðlæknum.
- Veitir öflugan raka
- Sefar húðina
- Minnkar flögnun
Þetta krem er sérhæfð meðferð til þess að sefa húðina og um leið koma jafnvægi á rakabúskap og fituframleiðslu hennar. Kremið styrkir ysta lag húðarinnar og hjálpar henni þannig að halda náttúrulegu raka og fitujafnvægi. Kremið dregur úr flögnun og styrkir mótstöðuafl húðarinnar þannig að hún verður minna viðkvæm. Einkaleyfisvarið innihaldsefni Octopirox® hefur bakteríuhamlandi eiginleika og kemur jafnvægi á náttúrulega varnarflóru húðarinnar. Octopirox® hjálpar til við að halda flösuexemi í skefjum. Kremið hjálpar til við að koma jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar og gera hana mattari. Viðkvæm húð þolir kremið vel og það inniheldur sólarvarnarstuðul SPF 15.
- Ofnæmisprófað
- Klínískt prófað
- Án ofnæmisvaka (Allergen free)
- Án ilmefna