KAL

KAL Kelp Iodene 225mcg 250 hylki

Þari góður til að auka joðinntöku. Þari er talin hafa hreinsandi áhrif á líkamann og losa hann við óæskileg eiturefni. Joð stuðlar að eðlilegum vexti barna, eðlilegri vitsmuna starfsemi, efnaskiptum, starfsemi taugakerfis og framleiðslu skjaldkirtilshormóna og starfsemi skjaldkirtilsins. Þari getur stuðlað að: betri húð, betra hár og betri neglur. Saltvatnsþörungarnir sem eru ríkir af náttúrulegum steinefnum. Nátturulegt joð. 225 mcg af joði í hverri töflu. Hentar grænimetisætum.

Vörunúmer: 10113063
+
1.999 kr
Vörulýsing

Ráðlagður dagskammtur af joði eru 150 míkrógrömm (mcg) fyrir fullorðna. Á meðgöngu og við brjóstagjöf eykst þörfin en mælt er með 175 mcg á meðgöngu og 200 mcg við brjóstagjöf. Þær konur sem borða sjaldan eða aldrei fisk og neyta
auk þess lítillar mjólkur og/eða mjólkurvara geta verið í hættu á að fullnægja ekki joðþörf
á meðgöngu. Því er mælt með því að þungaðar konur eða konur með barn á brjósti taki inn bætiefni/fjölvítamín sem innihalda joð en einnig er mælt með því að grænkerar (vegan) geri slíkt hið sama.

ATH! Þungaðar konur ættu alls ekki að nota þara eða þaratöflur sem joðgjafa þar sem hætt er við því að slík bætiefni innihaldi efni sem geta verið skaðleg fyrir fóstrið.
Efri mörk daglegrar neyslu á joði eru 600 mcg.

(Heimildir: Embætti landlæknis (2022), Norrænar næringarráðleggingar (2014))

Ábyrgðaraðili: Heilsa ehf.

Notkun

Taktu 1 töflu daglega með máltíð eða glasi af vatni

Tengdar vörur