Olíublandan inniheldur einnig óerfðabreytt soja lesitín sem aðstoðar við meltingu olíanna og hjálpar til við byggingu frumuhimna. Udos 3°6°9 olíublandan inniheldur miðlungslangar þríglýseríð-keðjur sem auðvelt er að melta og frumur líkamans geta nýtt sér beint til orkuframleiðslu án hættu á fitusöfnun.
Udos 3°6°9 olíublandan er pressuð og síuð samkvæmt bestu mögulegu leiðum, við lágan hita og án ljóss og súrefnis til þess að ná fram hámarksnæringu og ferskleika. Olíunni er tappað á köfunarefnishreinsaðar, gulbrúnar flöskur sem eru byrgðar til að ekkert súrefni komist að. Flöskunum er lokað og pakkað í kassa til að vernda innihaldið og tryggja bestu mögulegu gæði. Olían er geymd í kæli og flutt á milli staða á ís ef mikill hiti er í loftinu, til þess að viðhalda ferskleika hinna lífsnauðsynlegu fitusýra.
Ábyrgðaraðili: Heilsa ehf.