Vörur með andoxunarefnum
Anxounarefni minnka myndun sindurefna (fríir radikalar) í húðinni en það eru efni sem hraða öldrun húðarinnar með niðurbroti á kollageni og skemmdum á húðfrumum.
- C- vítamín: Öflugt andoxunarefni sem minnkar sólskaða í húð vegna útfjólublárrar geislunar, örvar kollagen nýmyndun og hefur áhrif á litabreytingar í húð (lýsir húðina).
- E-vítamín: Fituleysanlegt andoxunarefni sem verndar frumuhimnur húðfrumna gegn árásum sindurefna og niðurbroti.
- Ferrulic sýra: Andoxunarefni í plöntum og er unnið úr byggi. Hlutleysir sindurefni, drekkur í sig útfjólubláa geislun og er bólgueyðandi.
- Phloretin: Andoxunarefni unnið úr eplum sem hlutleysir sindurefni í húðinni og hefur lýsandi áhrif á litarbreytingar í húð.