1. SKILMÁLAR
Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum og þjónustu Lyfju hf. til neytanda.  Skilmálarnir eru staðfestir með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskiptin. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og við tryggjum viðskiptavinum okkar örugg viðskipti á netinu. 

2. SKILGREININGAR
Seljandi er Lyfja hf ehf. kt. 531095-2279.  Kaupandi er sá aðili sem skráður er sem kaupandi á reikning.  Kaupandi verður að vera a.m.k. 16 ára.

3. SKILARÉTTUR
Fyrir allar snyrtivörur, húð- og hárvörur, barnavörur, bætiefni, ilmi og fyrir samskonar vörur úr netverslun gildir: 

  • Þú hefur 30 daga til að hugsa þig um hvort varan sé sú rétta fyrir þig 
  • Þú getur skilað vörunni þinni gegn framvísun kvittunar eða skilamiða í hvaða verslun Lyfju sem er, óháð því hvar hún var keypt 
  • Þú ræður hvort þú veljir þér aðra vöru í staðinn, færð inneignarnótu eða endurgreitt ef varan sem þú keyptir hentar þér ekki (endurgreitt á kreditkort eða í pening) 
  • Passaðu að varan sem þú skilar sé með órofnu innsigli og í upprunalegu ástandi svo þú getir skilað henni
     

Þú getur ekki skilað eða skipt lyfjum, lausasölulyfjum, sterílum vörum, bætiefnum eða öðrum vörum sem krefjast ákveðinna geymsluskilyrða.  

- Útsöluvörur 
Ef vara er keypt á fullu verði en skilað þegar tilboð eru í gangi færð þú fullt verðmæti vörunnar til baka gegn framvísun kassakvittunar.   Ef skilamiði er á vöru gildir verðið á þeim tíma sem skilað er. 

- Spurt og svarað 

  • Er hægt að skila vörum þar sem umbúðir eru rifnar? 
    Nei, því miður. Ef varan telst ósöluhæf þ.e. vara sem er opnuð, umbúðir rifnar eða rispaðar, beyglaðar pakkningar eða er á anna hátt ekki í upprunalegu ástandi er ekki hægt að skila.
     
  • Er hægt að skila í hvaða verslun sem er? 
    Já auðvitað, þú getur komið í þá verslun Lyfju sem hentar þér best. Passaðu bara að vera með kassakvittunina með þér eða að skilamiði sé á vörunni.
     
  • Get ég skilað öllum vörum? 
    Ekki er hægt að skila eða skipt lyfjum, lausasölulyfjum, bætiefnum, sterílum vörum eða öðrum vörum sem krefjast ákveðinna geymsluskilyrða.
     
  • Hvað hef ég langan tíma til að skila vörum?  
    Þú hefur 30 daga til að hugsa þig um hvort varan sé sú rétta fyrir þig
     

4. VÖGGUGJÖF LYFJU

  • Vöggugjöfin er hugsuð fyrir verðandi foreldra og börn að þriggja mánaða aldri.
  • Vöggugjöfin nýtist verðandi og nýbökuðum foreldrum best og er hugsuð fyrir foreldra en ekki aðstandendur.
  • Til að sem flestir foreldrar og nýfædd börn geti notið Vöggugjafarinnar gerum við einungis ráð fyrir einni Vöggugjöf fyrir hvert barn.
  • Við sérveljum gæðavörur í Vöggugjöfina, en þær gætu verið mismunandi milli ára 
  • Vöggugjöfin er sérvalin og því er ekki hægt að skila eða skipta einstaka vörum úr Vöggugjöfinni.
  • Sækja þarf Vöggugjöfina innan 14 daga í verslun Lyfju
     

5. VERÐ OG VERÐBREYTINGAR
Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti ýmist 11% eða 24% og birt með fyrirvara um innsláttarvillur og áskilur Lyfja hf. sér rétt til að ljúka ekki viðskiptum hafi rangt verð verið gefið upp.  Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar. Verðbreytingar sem gerðar eru eftir að pöntun er staðfest eru ekki afturkræfar nema í ljós komi að um innsláttarvillu eða ranga skráningu hafi verið að ræða.

Við upplýsum viðskiptavini okkar um ef vara sem hefur verið pöntuð er ekki til á lager tímabundið og bjóðum uppá að hún verði send þegar hún verður aftur fáanleg. Ef vara er ekki til á lager til lengri tíma mun Lyfja hf. endurgreiða viðskiptavini pöntunina að fullu hafi greiðsla farið fram.

6. PERSÓNUVERND
Seljandi fer með allar upplýsingar sem trúnaðarmál og eru þær eingöngu nýttar til að klára viðkomandi viðskipti.  Upplýsingar um greiðslukortanúmer koma ekki til seljanda heldur eru á afmörkuðu vefsvæði viðkomandi greiðsluþjónustu. Til þess að styðja við þjónustu okkar eru upplýsingar um sölu í netverslun vistaðar í 40 daga og þá gerðar ópersónugreinanlegar. 

7. SENDINGARMÖGULEIKAR OG KOSTNAÐUR
Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram.  

  • Pakki heim að dyrum með Íslandspósti - 1.190 krónur
  • Pakki á pósthús Póstsins - 990 krónur
  • Póstbox (8 staðir hjá Íslandspósti) - 750 krónur
  • Eimskip (sent heim milli kl. 17-22 á virkum dögum). SMS sent þegar sending er á leiðinni. - 1.350 krónur
  • Afhent á sendingarstað (póstbox á N1, World Class, Kringlan þjónustuver) Afhendingarstaðir á póstbox á öllu höfuðborgarsvæðinu ásamt Borgarnesi, Akranesi og Akureyri. QR kóði er sendur í SMS þegar sendingin er komin á afhendingarstað.- 650 krónur
  • Heimspakkar - verðskrá er að finna í kaupferlinu eftir löndum.
  • Sækja sendingu í verslanir Lyfju á landsbyggðinni - frítt.
     

Frír sendingarkostnaður er innanlands ef pantað er fyrir 8.900 krónur eða meira.

8. AFHENDINGARTÍMI
Eftir að pöntun hefur borist er pöntunin send með Íslandspósti eftir 1-4 virka daga. Því miður getum við ekki alltaf tryggt að ákveðin vara sé til á lager þegar netpöntun er tekin saman. Ef sú staða kemur upp að vara er ekki til eða er á bið þá látum við þig vita í tölvupósti. Þegar valið er að sækja pöntun í verslanir Lyfju á landsbyggðinni getur afhendingartími verið 3-5 virkir dagar.

9. ÖRYGGI
Það er 100% öruggt að versla hjá www.lyfja.is/netverslun  Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu Valitors.

10. GREIÐSLUMÖGULEIKAR
Í netverslun Lyfju er boðið uppá nokkrar greiðsluleiðir. í boði er að greiða með öllum helstu greiðslukortum, maestro debetkortum, millifærslu, PEI og Netgíró.  Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send.

11. MILLIFÆRSLUR
Ef valið er að greiða með millifærslu er óskað eftir því að staðfestingu á greiðslu verði send á netfangið: netverslun@Lyfja.is   

12. BANKAREIKINGUR:

0537-26-10300
kt: 531095-2279

Ef pöntun er ekki greidd innan tveggja daga telst pöntun ógild.

13. GREIÐSLUKORT
Mögulegt er að greiða með pöntun með öllum helstu kreditkortum og fer greiðsla í gegnum örugga greiðslugátt hjá Valitor.

14. NETGÍRÓ
Netgíró er kortalaus viðskipti á netinu. Til þess að geta nýtt sér þennan greiðslumöguleika er skilyrði að viðskiptavinur sé með aðgang hjá Netgíró sem hægt er að sækja um hér:  www.netgiro.is Viðskiptavinur þarf þá einungis að slá inn kennitölu og lykilorð í lok kaupferlisins. Greiðsluseðill birtist í heimabanka viðskiptavina sem gefst kostur á að greiða reikninginn innan 14 daga, vaxtalaust. 

15. PEI
Pei er kortalaus greiðsluleið þar sem þú borgar með að fá greiðsluseðil sendan í heimabanka með 14 daga til að borga. Hægt er að fá auka 30 eða 60 vaxtalausa daga til að borga, einnig er hægt að dreifa kaupunum. Ekki er nauðsynlegt að vera forskráður hjá Pei ef verslað er fyrir undir 20.000 kr. Ef þú skráir þig inn á www.pei.is sérð þú þína heildarheimild hjá Pei.

16. LÖG UM VARNARÞING
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur

17. FYRIRTÆKJAUPPLÝSINGAR

Lyfja hf
Hagasmári 1-3ja hæð
201 Kópavogur
Sími: 530-3800
Netfang: netverslun@lyfja.is
VSK no: 49215

18. STAÐSETNING NETVERSLUNAR

Lyfja Smáratorgi
201 Kópavogur
Sími: 533 2316
Netfang: netverslun@lyfja.is