Clarins
My Clarins er vörulína sem leggur áherslu á umhverfið og að framleiða náttúrulegar vörur, en línan er 95% náttúruleg, vegan og cruelty free. Þessi vörulína miðar að yngri húð, sem og að fullorðnu fólki sem er að byrja að feta sig áfram í húðumhirðu. Í stuttu máli einblínir þessi lína á að efla húðina, gefa henni góðan raka og útgeislun.
Vörulínan samanstendur af níu húðvörum en í henni má finna eitthvað sem hentar fyrir allar húðtýpur. Í línunni eru þrjú Re-boost krem, Re-charge nætur maski, Re-fresh rakasprey, Re-move hreinsimjólk, Re-move hreinsigel, Pore-less pore and mattifying skrúbbur og Clear-out vara sem hreinsar upp bólur og önnur óþægindi.