La Roche-Posay
Vörurnar frá La Roche-Posay eru þróaðar í samvinnu við húðsjúkdómalækna með það að markmiði að bjóða öllum þeim sem eru með viðkvæma húð uppá betra líf. Húðvörurnar byggja á lindarvatninu frá La Roche-Posay sem er staðsett í litlum bæ í Frakklandi með sama nafn og vörurnar. Formúlur húðvaranna eru settar saman með það til hliðsjónar að skapa vörur sem virka, veita húðinni notalega tilfinningu og fara vel með viðkvæma húð. La Roche-Posay vörurnar eru eingöngu fáanlegar í apótekum.