Wrinkles Schminkles
Wrinkles schminkles var stofnað árið 2014 af Gabrielle Requena sem varð vör við nýtt vandamál. Á bringu hennar voru farnar að myndast nýjar línur sem hún hafði ekki tekið eftir áður. Hún leitaði víðsvegar lausna hvernig hægt væri að sporna gegn nýju óvelkomnu hrukkunum og komst að því að það voru nánast engar áhrifaríkar lausnir í boði.
Hún hóf því að þróa nýja tegund að vörum sem áttu það sameiginlegt að vera árangursríkar, öruggar og á viðráðanlegu verði. Vörurnar áttu eftir að hjálpa konum um allan heim að viðhalda unglegri húð og koma í veg fyrir hrukkumyndun á svo ótrúlega einfaldan en jafnframt áhrifaríkan hátt.
Wrinkles Schminkles notast einungis við bestu innihaldsefni sem völ er á. Vörurnar eru allar niðurbrjótanlegar, vegan, paraben fríar og aldrei prófaðar á dýrum. Vörurnar innihalda engin litar- eða lyktarefni. Sílikonplástrarnir eru framleiddir Bandaríkjunum í FDA (Food and Drug Administration) vottaðri verksmiðju. Plástrarnir eru úr 100% hágæða læknasílikoni og eru þeir einu sinnar tegunar.