Better You C-vítamín munnúði 50 ml.

C-vítamín er án efa lífsnauðsynlegt vítamín og gegnir mörgum mikilvægum hlutverkum í starfsemi líkamans. Flestir þekkja hlutverk þess fyrir ónæmiskerfið og taka það inn sem bætiefni til að efla viðnám líkamans gegn flensum og sýkingum, en C-vítamín er einnig mikilvægt fyrir m.a myndun kollagens sem er eitt af byggingarefnum líkamans, fyrir betri upptöku og nýtingu á járni úr fæðunni og spilar stórt hlutverk sem verndandi andoxunarefni.

Vörunúmer: 10162938
+
2.599 kr
Vörulýsing

C-vítamín munnúðinn frá Better You inniheldur einnig grænt te, B2 sem er gríðarlega mikilvægt vítamín fyrir orkubúskap fruma og selen sem er eitt hinna svokölluðu andoxunarnæringarefna líkamans.

C-vítamín blandan frá Better You er frábrugðin flestum C-vítamínum á markaðnum þar sem það er í munnúðaformi sem gerir það afar hentugt í notkun. Munnúðinn skilar næringarefnum beint út í blóðrásina í gegnum slímhúð í munni.

  • Hröð upptaka
  • Vegan
  • Sykurlaust
  • Óhætt að nota á meðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur
  • Náttúrulegt kirsuberja- og bláberja bragð
  • Umbúðir gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum

Ábyrgðaraðili: Artasan

Notkun

Ráðlagður skammtur 1 -5 ára ára 1 spray, 5-12 ára 2 sprey, 13 ára og eldri 4 sprey

Tengdar vörur