Depridix er samsetning valinna jurta, vítamína, blómadropa og annarra bætiefna sem eru sett saman til þess að vinna gegn vanlíðan. Það er framleitt í Noregi en þar hefur það hjálpað þúsundum Norðmanna að öðlast lífsorkuna á ný en þess má geta að þeir búa við dimma vetrartíð eins við Íslendingar. Til marks um dálæti Norðmanna á Depridix er fjöldi tímaritsgreina og skrifa á netinu. Dæmi um það eru þessi ummæli ungrar norskrar konu:
„Þetta er alveg ótrúlegt, strax eftir fjóra dag var eins og að ég vaknaði upp af djúpum þunglyndisdróma og sólin fór að skína á ný.“
En sérstaklega hefur verið til þess tekið hve fljótt þetta bætiefni virkar á fólk. Depridix var þróað í samvinnu þerapista og náttúrlækna í nokkur ár áður en það var sett á markað. Það naut strax mikilla vinsælda.
Að sjálfsögðu skyldi aldrei hundsa alvarleg, viðvarandi einkenni sem valda óbærilegri vanlíðan. Leitaðu þér hjálpar viðeigandi sérfræðinga ef þess er þörf. Þetta bætiefni er hugsað sem stuðningur við gott mataræði og heilbrigðan lífsstíl.
Ábyrgðaraðili: Heilsa ehf.