Difrax S-peli 170 ml. #karamella

S-pelinn fyrir krílin og krakkana! Pelinn sem hefur verið í uppáhaldi hjá börnum og foreldrum vegna hins einstaka "anti-colic" loks og S-lögunar pelans . Þessir eiginleikar pelans tryggja stöðugt og jafnt flæði vökvans. Eiginleikarnir koma í veg fyrir tómarúmssog hjá barninu úr pelanum, sem aftur tryggir jafnt og stöðugt flæði vökvans og gerir barninu kleift að drekka án þess að innbyrgða umfram óþarfa loft.

Vörunúmer: 10164967
+
3.150 kr
Vörulýsing
  • Þannig draga hinir sérstöku eiginleikar úr líkunum á óþarfa magakrampa, ristilkrampa, hægðatregðu, ropa, bakflæði og uppköst af völdum umfram lofts. 
  • Sérstök S-lögun pelans gefur eðlilega og náttúrulega brjóstagjafastellingu, bæði fyrir krílið og þann sem gefur því. Stuðlar að tengslamyndun við barnið ásamt því sem sá sem gefur getur verið í eðlilegri og afslappaðri líkamsstöðu. 
  • Læknar hafa mælt með þeirri náttúrulegu bognu líkamsstöðu barnsins sem S-pelinn veitir. 
  • S-pelann má gefa krílunum allt frá fæðingu, en hann hefur einnig sýnt og sannað ágæti sitt samhliða brjóstagjöf. 
  • S-pelinn hentar jafnt nýburum sem og fyrirburum. 
  • Botn pelans má skrúfa af, sem gerir þrif og áfyllingu á pelann einstaklega aðgengileg. 
  • S-pelinn er hannaður í samvinnu við lækna og ljósmæður. 
  • S-pelinn kemur með túttu í stærð small sem einkum hentar nýburum og fyrirburum. Þá er hægt að kaupa aukapelatúttur í stærðum medium og large. - Einstaklega mjúkt yfirborð túttanna, gefur gott grip fyrir krílið. 
  • Difrax hefur þróað sérstakan pelahitara sem sérstaklega er hannaður fyrir S-pelann. Það tekur hitarann 3 mínútur að hita vökvann í ráðlagt hitastig, 37'C. 
  • S-pelinn passar fullkomlega á Difrax Btob brjóstapumpuna. 
  • Fyrir notkun er ráðlagt að ganga úr skugga um að pínulitla gatið fyrir miðju silkikonstykkisins sé opið með því að kreista stykkið nokkrum sinnum.
  • Mikilvægt er að framkvæma daglega athugun á pelatúttu, toga þéttingsfast í hana sjálfa og ganga úr skugga um að hún sé heil og óskemmd.
  • Það má setja S-pelann í örbylgjuofn og uppþvottavél. 
  • Difrax vörurnar eru þróaðar í samvinnu við læknateymi sem m.a. samanstendur af barnalæknum, talmeinatæknum, tannlæknum, mjólkursérfræðingum og næringarráðgjöfum.
  • Allar Difrax vörurnar eru BPA fríar.

Tengdar vörur