Önnur innihaldsefni: Náttúruleg andoxunarefni (rósmarín þykkni með náttúrulegum tókóferólum (tocopherols))
Athugið að Dropi þorskalýsi er gert úr 100% náttúrulegum hráefnum og næringargildið, ásamt lit og bragði olíunnar getur verið mismunandi eftir framleiðslulotum. Næringargildið er því byggt á meðaltali.
Mandarin orange (Citrus reticulata) er lítill sítrus ávöxtur. Í hefðbundinni kínverskri læknisfræði er þurrkað hýði af ávöxtum notað til að auka meltinguna. Þessi lífræna olía kemur frá fersku, þurrkuðu hýði af mandarínum. Bragðið er talið sætara og sterkara en af venjulegri appelsínu.
Notkun: 1 teskeið (5ml) á dag. Ef þú ert barnshafandi, með barn á brjósti, með ofnæmi fyrir fiski eða þjáist af langvinnum veikindum mælum við með að þú fáir faglega ráðgjöf hjá viðeigandi heilbrigðisstarfsfólki.
Varúð/Varist: Geymið þar sem börn ná ekki til. Innbyrðið ekki meira en ráðlagðan dagskammt. Fæðubótarefni ætti ekki að koma í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði.
Geymsla: Geymist í ísskáp fyrir langvarandi ferskleika. Geymist í 3 mánuði í ísskáp eftir opnun.