- Breytingaskeið (áður Kvennablómi) hefur fengið mikið af jákvæðum reynslusögum frá konum sem kunna að meta þessa vöru og hvernig hún hefur hjálpað þeim.
- Breytingaskeið inniheldur soja ísóflavonóíð sem innihalda svokölluð jurta-estrógen. Rannsóknir benda til að Soja ísóflavonóíð hafi jákvæð áhrif til lækkunar á háu kólesteróli og hefur verið notuð með góðum árangri við svitakófum hjá konum á breytingaraldri. Þá er talið að þau virki verndandi fyrir æðar og bein.
- Breytingaskeið inniheldur Dong Quai jurtina sem er þekkt í kínverskri læknisfræði fyrir að auka blóðflæði um líkamann. Á vesturlöndum er hún mest notuð af konum, þá helst sem styrkjandi jurt vegna vandamála frá móðurlífi. Hún er talin koma jafnvægi á hormónaefnaskipti kvenna. Mælt er með jurtinni fyrir konur vegna þrauta tengdum breytingarskeiði, einnig til að efla þrótt. Jurtina þarf að nota í allt að 6–8 vikur, áður en áhrif hennar skila sér að fullu.
- Breytingaskeið inniheldur Wild Yam sem er jurtaprógesteronlíka hormóna og er mikið notuð við óþægindum breytingarskeiðsins. Hún er talin bólgueyðandi og verkjastillandi og auk þess vökvalosandi. Mörgum þykir hún draga úr svitakófum.
- Breytingaskeið inniheldur Salvía er talin góð við svitakófum og stuðla að hormón.
Án eggja, án hveitis, án jarðhneta, án mjólkur, án skelfisks, án trjáhneta.
Ábyrgðaraðili: Heilsa ehf.