Hedrin Protect & Go vörn gegn lús og nit 120 ml. spray

Hentar þeim sem vilja forðast lús. Ofnæmisvottuð vörn gegn lús. Ver hárið fyrir lús með reglulegri notkun. Notað 2 í viku, alltaf eftir hárþvott og sett í þurrt hárið
Á ekki að þvo úr hárinu. Horfðu á myndband um lúsina hér.

Vörunúmer: 10141645
+
3.654 kr
Vörulýsing

Ver hárið fyrir lús með reglulegri notkun

  • Auðvelt og fljótvirkt að úða í hárið og á ekki að þvo úr
  • Ofnæmisvottuð vörn: Án skordýraeiturs, ilmefna og parabena.
  • Árangurinn er klínískt staðfestur

Lúsameðöl frá Hedrin eru án allra ilmefna, rotvarnarefna og ofnæmisvaldandi efna. Því er öruggt að nota það bæði handa börnum og fullorðnum. 

Sækir lúsin frekar í óhreint hár?
Lús gerir engan greinarmun á hreinu eða óhreinu hári. Lús lifir á blóði en ekki óhreinindum.

Er betra að vera með stutt hár?
Nei – lús getur lifað í hári sem er 3 mm að lengd.

Getur lús hoppað, synt eða flogið?
Nei, lúsin getur aðeins skriðið í hárinu. Stundum virðist lúsin hoppa, en það stafar af rafmagni sem myndast í hárinu þegar það er kembt þurrt.

Getur lúsin smitast með fötum?
Nei. Lús smitast eingöngu með beinni snertingu hárs. Lúsin lifir mjög stutt utan hársvarðar og ef hún dettur er hún orðin mjög veikburða. Lúsin smitast því ekki með fatnaði, húfum eða sængurfötum.

Hverjir fá oftast lús?
Allir geta fengið lús en algengast er að börn frá 3 til 10 ára smitist. Stelpur eru í meirihluta.

Er þörf á að meðhöndla alla á heimilinu komi upp lúsasmit?
Nei. Finnist lifandi lús í hári skal kemba hár allra á heimilinu og meðhöndla þá sem eru smitaðir með Hedrin®

Drepast nitin við meðferð?
Hedrin® Once drepur bæði lifandi lús og nit í einni meðferð.  Ef meðhöndlað er með Hedrin® Original eða Hedrin® Treat & Go skal endurtaka meðferðina eftir 7 daga til að tryggja að unglús sem mögulega hefur klakist úr eggjum frá fyrri meðferð drepist einnig.



Notkun

Úða skal Hedrin Protect & Go® í þurrt  eða rakt hárið þegar það hentar, hvort sem er áður en farið er í rúmið á kvöldin eða á leið út um dyrnar á daginn. EKKI á að þvo Hedrin Protect & Go® úr hárinu. Það má blása hárið þurrt eða láta það þorna af sjálfu sér – og það má greiða hárið með bursta eða greiðu.

Til að ná sem bestri vörn skal nota Hedrin Protect & Go® tvisvar sinnum í viku. Þegar hárið er þvegið, skolast Hedrin Protect & Go® úr. Því skal ávallt setja það í hárið eftir hárþvott. 

Tengdar vörur