Saga Natura Íslenskt Astaxanthin 4mg, 30 dagskammtar (60 töflur)

Astaxanthin er eitt af öflugustu andoxunarefnum náttúrunnar og er til að mynda 6.000 sinnum sterkara en C-vítamín. Astaxanthin vinnur að því að græða og vernda alla frumuna í heild sinni sem gerir það nokkuð frábrugðið öðrum andoxunarefnum. Húð, vöðvar, liðbönd, sinar, augu, innri líffæri, hjarta- og æðakerfi ásamt taugakerfi eru öll móttækileg fyrir Astaxanthin, sem gerir það einstaklega virkt meðal andoxunarefna.

Vörunúmer: 10154504
+
3.198 kr
Vörulýsing

Bætt heilsa, árangur og almenn vellíðan með Íslensku Astaxanthin!

Í tveimur perlum af Íslensku Astaxanthin færð þú:

  • Náttúrulegt íslenskt AstaKey™ Astaxanthin 8mg
  • E-vítamín 8mg

Astaxanthin 8 mg –Náttúrulegt íslenskt Astaxanthin og E-vítamín sem stuðlar að verndum fruma fyrir oxunarálagi. Íslenskt Astaxanthin er fyrir alla þá sem leita eftir auknum krafti í amstri dagsins. Öfluga andoxunarefnið Astaxanthin getur bætt frammistöðu þína en það hefur jákvæð áhrif á bæði þrek og endurheimt vöðva. E-vítamín 8 mg (67% af næringarviðmiði)

Íslenskt Astaxanthin er nýjasta varan okkar í Astaxanthin fjölskyldunni. Hún er ætluð fyrir þá sem sækjast eftir öfluga andoxunarefninu Astaxanthin sem ver húð gegn geislum sólarinnar og hefur ýmis önnur jákvæð áhrif á líkamann.

Astaxanthin:

  • verndar húðina fyrir sólargeislum og dregur þar með úr ótímabærri öldrun húðarinnar þar sem hún heldur betur í raka og er teygjanlegri. Húðin þornar því síður og hrukkast eins og gerist hjá flestum þegar aldurinn færist yfir
  • hefur sýnt fram á jákvæð áhrif á úthald og orku þar sem efnið eykur þrek og vöðvamyndun við æfingar auk þess sem það veitir betri endurheimt vöðva eftir átök
  • hefur ýmis jákvæð áhrif á hjarta- og æðakerfi en það getur dregið úr myndun á vonda kólesterólinu og aukið við það „góða“, auk þess sem það hefur jákvæð áhrif á blóðflæði og minnkar bólgur
  • hefur gefið góða raun vegna stirðleika í liðum ásamt því að draga umtalsvert úr liðaverkjum 
  • hefur jákvæð áhrif á augnheilsu því efnið verndar augnbotnana og getur því hjálpað til við augnþreytu, þurrk og minnkað eða hægt á augnhrörnun sem svo margir upplifa með hækkandi aldri

Hreinleiki og gæði Astaxanthin haldast í hendur við framleiðsluaðferðir og framleiðsluaðfanga, t.a.m. vatn. Því var lykilatriði að koma upp framleiðslutækni sem tryggði 100% hreinleika, 100% gæði og skildi eftir sig sem minnsta kolefnisfótspor sem við höfum náð með góðum árangri þar sem við notumst við hreint íslenskt vatn og íslenska orku í framleiðsluferlinu.

Ábyrgðaraðili: SagaNatura ehf.

Notkun

Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 2 perlur á dag með mat.

Innihald

Sólblómaolía, AstaKey® Astaxanthin rík olía úr smáþörungum (Haematococcus pluvialis), perla (breytt sterkja, (óerfðabreytt), glýserín, karragenan, natríum karbónat), E-vítamín (náttúrulegt tókóferól).

Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 2 perlur á dag með mat.

2 perlur innihalda:

  • AstaKey® Astaxanthin: 8 mg
  • E-vítamín: 8 mg*

*67% af næringarviðmiði fyrir fullorðna.

Pakkningarstærð: 60 stk.
Geymist á þurrum, svölum stað þar sem börn ná ekki til.
Engir þekktir ofnæmisvaldar í vörunni.

Ekki er ráðlagt að neyta meira af vörunni er ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu.
Barnshafandi konum, konur með barn á brjósti, börn undir 18 ára aldri og fólk með sjúkdóma er ávalt ráðlagt að leita álits læknis eða annars sérfræðings áður en tekin eru inn fæðubótarefni.

Tengdar vörur