Kremið inniheldur meira magn af Hyaluronic Acid en önnur krem frá L’Oreal. Þar sem náttúruleg framleiðsla húðarinnar á þessu fyllingarefni minnkar með aldrinum örvar kremið þessa framleiðslu og eykur virkni þess með sinni viðbót.
Virku innihaldsefnin í kreminu eru Hyaluronic Acid, Glycerin og plöntuþykknið Fibroxyl. Saman draga efnin úr hrukkum og fínum línum, styrkja húðina, gefa húðinni aukna fyllingu og móta andlitsdrætti.
Notið kremið á hverjum morgni á andlit og háls. Dreifið vel úr kreminu yfir húðina og notið það yfir Serum Fillerinn til að fá fulla virkni frá vörulínunni.