Mádara Infinity Mist Probiotic Essence
Spreyið Infinity mistinu á hreina húð, Mistið inniheldur Hyaluronic sýru sem baðar húðina í raka og veitir henni ljóma auk Probiotic- lactobacillus sem gefur jafnvægi á örveruflóru húðarinnar, styrkir verndar filmu hennar og kemur í veg fyrir vökvatap.
Mádara Immuno-serum
Serumið vann Cosmopolitan Beauty Awards 2019. Immuno-serumið er viðgerðar serum fyrir allar húðgerðir. Það róar erta og viðkvæma húð, minnkar roða og bólgur og gefur jafnvægi á örveruflóru hennar. Serumið smígur hratt inn í dýpsta lag húðarinnar. Notið kvölds og morgna, fullkomið undir hvaða kremi sem er frá Madara. Glútenlaust, vegan, hnetulaust.