Nanogen hárþykkingarnæring fyrir alla 240 ml.

Ný og endurbætt hárnæring sem blæs sjáanlega út fíngert hár þannig að það fái á sig aukna þykkt og lyftingu. Þykkingarnæringin er létt, en öflug og gerir hárið sterkara, þykkara og heilbrigðara frá fyrsta þvotti, auk þess að veita því meiri glans og náttúrulega lyftingu.

Vörunúmer: 10147111
+
3.599 kr
Vörulýsing

Hárþynning er algengt vandamál meðal kvenna og sýna rannsóknir fram á að mikið af konum hafa áhyggjur af hárlosi og hárþynningu.

Konur eru almennt sammála um það að þykkt hár lætur þeim finnast vera meira aðlaðandi. Nanogen línan er sérhönnuð fyrir hár kvenna og getur sýnt þér fram á hvernig hægt er að öðlast þykkara hár með meiri fyllingu.

Nanogen er heildstæð hárþykkingarmeðferð sem samanstend­ur af sjampói, hárnæringu, serumi og hártrefjum.

Hárvörulínurnar innihalda svokallaða vaxtarþætti sem örva hárvöxt og auka þykkt hársins.

Þegar hárþynning og skallamyndun á sér stað liggja hár­sekkirnir í dvala. Nanogen serumið inniheldur vaxtarörvandi efni sem er borið í hársvörðinn og hjálpar óvirkum hársekkjum að endurnýja sig og viðhalda heilbrigðum hárvexti.

Á meðan á meðferðinni stendur er svo hægt að nota hártrefjar sem fást í mörgum litum. Þær hylja vandamálasvæðið og segja notend­ur að varan veiti þeim aukið sjálfstraust og vellíðan.

Línan er sérhönnuð fyrir karla jafnt sem konur. Þótt karlar glími oftar við hárþynningu kannast margar konur við hárlos eftir barnsburð og veikindi svo dæmi séu nefnd.

Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar á þessum vörum. Ein þeirra leiddi í ljós að 88 prósent 200 kvenna sem notuðu vörurnar í mánuð upplifðu sýnilegan árangur. Þá hafa óháðar rannsóknir sýnt fram á mun betri árangur með Nanogen en sambærilegum vörum.

Hvað eru vaxtarþættir og hvernig virka þeir í Nanogen vörunum?

Eins og myndbandið útskýrir þá eru vaxtarþættir náttúruleg skilaboð sem líkami þinn framleiðir til þess að viðhalda hárvexti. Það eru til margvísleg jurtaþykkni og gerviefni sem herma eftir þessum vaxtarþáttum að hluta til, en ekkert af þeim gaf merki um aukinn hárvöxt við prófun.

Það sem Nanogen gerði var að nota tækni sem eingöngu var að finna í háþróuðum lyfjum sem endurnýjuðu vaxtarþættina. Nanogen vaxtarþættirnir eru einkaleyfisvarðir og eru nákvæmlega eins náttúrlegir hárvaxtarþættir líkamans. Þeir eru mikilvægir að því leyti að þeir eru sérstaklega áhrifaríkir, virka jafn vel á konur og karla, og hafa þar að auki engar hliðarverkanir né valda ofnæmisviðbrögðum.

Innihald
  • Hún inniheldur einstaka Nanogen hárvaxtarþætti: blöndu virkra efna sem styðja og örva náttúrulegt ferli hársins til þess að viðhalda heilbrigðum hárvexti.
  • Inniheldur einnig hyaluronic sýru sem ver hárið frá áhrifum öldrunar og gefur hárinu og hársverðinum aukinn raka, þannig að hárið verður vel nært með silkimjúka áferð.
  • Næringin er laus við paraben, SLS og hentar fyrir viðkvæman hársvörð.

Tengdar vörur