Naomi Campbell Private Edt 30 ml.
Topptónn ilmsins er mildur ávaxtatónn sem einkennist af ferskri mandarínu, sætri peru og flauelskenndum ferskjum. Í hjarta ilmsins kemur saman áfeng angan rósa og suðrænn og seiðandi ilmur appelsínublóma sem gefur einstaklega ferska angan. Pipar og fersk fresía framkalla sakleysislegan blæ. Í grunntónunum blandast ávextir og blóm hlýjum keim vanillu, framandi blæ tonka-bauna og seiðandi moskustónum – ógleymanleg og persónuleg upplifun.
Vörunúmer: 10137104