Neostrata Skin Active Intensive Eye Therapy 15 ml.

Einstök „SynerG“ formúla notast við sérstaka aðferð sem byggir upp og gerir viðkvæma húðina í kringum augnsvæðið bústnari og þéttari. Kremið inniheldur stofnfrumu ekstrakta úr eplum til þess að viðhalda langlífi stofnfruma húðarinnar þannig að húðin fer að hegða sér á sama hátt og umtalsvert yngri húð myndi gera.

Vörunúmer: 10116074
+
7.698 kr
Vörulýsing

Sérstök prótein (Peptides) örva þætti húðarinnar til aukinnar collagen framleiðslu. Augnsvæðið virðist sléttara og hláturhrukkurnar í kringum utanvert augnsvæðið sléttast innan frá. Koffín dregur úr bólgum (puffiness) á meðan hýalúrónsýrur virka sem náttúrulegur rakagjafi. Að lokum gefa E-vítamín þér ákjósanleg andoxunaráhrif.

Neostrata húðvörur innihalda efni sem kallast ávaxtasýrur, en rannsóknir sýna að þær hafa verulega bætandi áhrif á húðina. AHA-sýrur (alpha-hydroxy acids) og PHA (poly-hydroxy acids) eru einstakir rakagjafar og flýta fyrir endurnýjun húðfrumanna. Á þann hátt vinna Neostrata húðvörurnar gegn ótímabærri öldrun húðarinnar, þurrki og skemmdum í húð af völdum sólarljóss.

  • Neostrata húðvörurnar gefa húðinni jafnari hörundslit, heilbrigt og frísklegt yfirbragð.
  • Neostrata húðvörurnar eru þróaðar af húðlæknum og framleiddar eftir ströngustu gæðakröfum.
  • Húðvörurnar eru ekki prófaðar á dýrum, innihalda hvorki ilmefni né lit og eru ofnæmisprófaðar.

Þær Neostrata húðvörur sem innihalda sterka AHA-sýru (glycolic acid) hafa um árabil verið notaðar af húðlæknum með góðum árangri við ýmsum húðvandamálum. Þessar húðvörur innihalda 8-15% AHA-sýru (glycolic acid) og fást í apótekum gegn ávísun frá lækni. Húðlæknar veita auk þess áhrifaríkar sýrumeðferðir með allt að 70% styrk. Efnin komast dýpra inn i húðina og örva nýmyndun bandvefs sem oft leiðir til þess að yfirborð húðarinnar verður sléttara og fínlegra.

Innihald

Aqua/Water/Eau, Dimethicone, Cyclopentasiloxane, Ploysilicone-11, Acetyl Glucosamine, Glycerin, Cyclohexasiloxane, Nylon-12, Silica, Octyldodecyl Stearate, Tocopheryl Acetate, Palmitoyl Tetrapeptide-7, Sodium Hyaluronate, Caffeine, Malus Domestica Fruit Cell Culture Extract, Butylene Glycol, Lecithin, Isohexadecane, PEG-10 Dimethicone, Caprylyl Glycol, Polysorbate 40, Sorbitan Isostearate, Polysorbate 60, Citric Acid, Hydroxyethyl Acrylate/Sodium Acryloyldimethyl Taurate Copolymer, Carbomer, Polysorbate 20, Isostearic Acid, Ammonium Polyacryloyldimethyl Taurate, Xanthan Gum, Chlorphenesin, Phenoxyethanol, Caramel, Yellow 5 (Cl 19140).

Tengdar vörur