Blanda af mismunandi andoxunarefnum veita húðinni góða alhliða vörn ásamt því að UVA og UVB stuðlar (SPF 30) verja hana gegn skaðsemi útfjólublárra geisla frá sólinni. Neo Glucosamine inniheldur einnig týrósín (tyrosinase) sem er lykilensími í framleiðslu húðarinnar á melaníni, sem dregur úr litabreytingum í húðinni.
Neostrata húðvörur innihalda efni sem kallast ávaxtasýrur, en rannsóknir sýna að þær hafa verulega bætandi áhrif á húðina. AHA-sýrur (alpha-hydroxy acids) og PHA (poly-hydroxy acids) eru einstakir rakagjafar og flýta fyrir endurnýjun húðfrumanna. Á þann hátt vinna Neostrata húðvörurnar gegn ótímabærri öldrun húðarinnar, þurrki og skemmdum í húð af völdum sólarljóss.
- Neostrata húðvörurnar gefa húðinni jafnari hörundslit, heilbrigt og frísklegt yfirbragð.
- Neostrata húðvörurnar eru þróaðar af húðlæknum og framleiddar eftir ströngustu gæðakröfum.
- Húðvörurnar eru ekki prófaðar á dýrum, innihalda hvorki ilmefni né lit og eru ofnæmisprófaðar.
Þær Neostrata húðvörur sem innihalda sterka AHA-sýru (glycolic acid) hafa um árabil verið notaðar af húðlæknum með góðum árangri við ýmsum húðvandamálum. Þessar húðvörur innihalda 8-15% AHA-sýru (glycolic acid) og fást í apótekum gegn ávísun frá lækni. Húðlæknar veita auk þess áhrifaríkar sýrumeðferðir með allt að 70% styrk. Efnin komast dýpra inn i húðina og örva nýmyndun bandvefs sem oft leiðir til þess að yfirborð húðarinnar verður sléttara og fínlegra.