Nutricia Nutridrink Compact kakóbragð 4 x 125 ml.

Nutridrink Compact (125 ml) er orkuþéttur og næringardrykkur (2,4 kkal/ml) með mjólkurkenndri áferð. Drykkurinn inniheldur minna magn en jafnmikla orku og hefðbundinn Nutridrink næringardrykkur (200 ml) og hentar því vel ef matarlystin er lítil. Inniheldur lífsnauðsynleg vítamín og steinefni. Glútenlaus og mjólkursykursnauður. Í einni flösku eru 300 kkal og 12 g. Næringardrykkirnir eru ekki niðurgreiddir af SÍ ef varan er versluð í netverslun
Vörunúmer: 10134659
+
2.737 kr
Vörulýsing
Næringardrykkir innihalda mikið magn af orku og próteinum, auk þess að innihalda lífsnauðsynleg næringarefni eins og vítamín og steinefni.
 
Í veikindum er sérstaklega mikilvægt að nærast. Gott næringarástand hjálpar til við að halda líkamsstyrk og orku en þættir eins og ógleði, þreyta, verkir og áhyggjur geta haft þær afleiðingar að matarlyst og löngun til að borða minnkar. Í þessum aðstæðum geta næringardrykkir verið góður kostur.
 
Til upplýsinga
  • Nutridrink næringardrykki skal geyma við 5-25°C, geymast í 24 klst. í kæli eftir að flaskan hefur verið opnið.       
  • Flestir kjósa að drekka Nutridrink næringardrykkina kalda en einnig er hægt að hita þá (mega ekki sjóða) eða frysta og borða sem ís.
  • Skilagjald fæst fyrir flöskurnar hjá Endurvinnslunni.
  • Frekari upplýsingar um vörur Nutricia má finna á www.nutricia.dk
  • Í einni pakkningu eru 4 flöskur

Tengdar vörur