Squalane Cleanser
Hreinsir sem fjarlægir og hreinsar förðunarvörur og óhreinindi. Hreinsirinn styður við náttúrulegan rakahjúp húðarinnar og húðin helst mjúk vegna lipophilic estera. Formúlan er ekki ofnæmisvaldandi og er sápulaus og hentar því vel til daglegrar notkunar. Formúlan hentar öllum húðgerðum.
Glycolic Acid 7% Exfoliating Toner
Andlitsvatn sem fjarlægir dauðar húðfrumur af ysta lagi húðarinnar ásamt því að fríska hana upp og vinna á litablettum. Formúluna á ekki að nota á viðkvæma húð. Inniheldur aloe vera, ginsing og aminó sýrur. Ph gildi formúlunnar er 3,6. Tips: Hægt er að nota vöruna til að taka svarta bletti undir höndum eða til að koma í veg fyrir inngróin hár. Formúlan inniheldur AHA sýrur sem gera húðina viðkvæma fyrir sólargeislum.Hentar: Öllum húðgerðum, nema mjög viðkvæmum.
Hyaluronic Acid 2% + B5
Hyaluronic Acid 2% + B5 er formúla sem sameinar lágar-, meðal- og þunnar hýaluronics sýrur sem viðhalda raka húðarinnar. Formúlan vinnur einnig á hrukkum og sléttir áferð húðarinnar. Hún inniheldur pro-vítamín B5 til að auka raka sem leiðir til sléttari og þéttari húðar. Hentar öllum húðgerðum.
Niacinamide 10% + Zinc 1%
Niacinamide 10% + Zinc 1% er serum sem eykur ljóma og sléttir húðina. Formúlan vinnur á bólum og minnkar húðholur með tímanum vegna hás styrks af niacinamide (vitamin B3) og zinc PCA. Athugið að varan er ekki meðferð við bólum. Hentar öllum húðgerðum.
Caffeine Solutions 5% + EGCG
Caffeine Solution 5% + EGCG er serum sem dregur úr þrota og dökkum baugum í kringum augun. Hentar öllum húðgerðum.
Natural Moisturizing Factors + HA, 30 ml.
Olíulaust rakakrem sem styður við náttúrulegan rakahjúp húðar. Rakakremið verndar ytra lag húðarinnar og gefur henni raka án þess að skilja eftir sig fitu. Kremið inniheldur meðal annars aminósýrur, hýalúrónsýrur, seramíða, sodium og glycerín. Með reglulegri notkun þá styrkir kremið varnarhjúp húðarinnar og húðin fyllist raka án þessa að verða fitug. Kremið veitir tafarlaus og varanleg áhrif. Hentar öllum húðgerðum.