OtoDual 45 ml.

OtoDual er lækningatæki sem hjálpar til við að draga úr eyrnaverk. Glýseról dregur í sig raka úr slímhúð í eyranu og dregur þannig úr þrota og verk. Lídókaín er staðdeyfandi efni sem magnar áhrif glýseróls og veldur þar með frekari verkjastillingu. 

Vörunúmer: 10170875
+
3.584 kr
Vörulýsing

OtoDual er lækningatæki sem hjálpar til við að draga úr eyrnaverk. Glýseról dregur í sig raka úr slímhúð í eyranu og dregur þannig úr þrota og verk. Lídókaín er staðdeyfandi efni sem magnar áhrif glýseróls og veldur þar með frekari verkjastillingu. Glýseról mýkir einnig upp eyrnamerg og hjálpar til við að fjarlægja hann.

Notkun

Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 2 dropar í hvort eyra, allt að þrisvar sinnum á dag. Leitið til læknis ef einkenni versna eða lagast ekki innan 3 daga.

Börn eldri en 6 mánaða: 2 dropar í hvort eyra, allt að þrisvar sinnum á dag. Má eingöngu nota undir eftirliti fullorðins einstaklings eða læknis. Leitið til læknis ef einkenni barnsins versna eða lagast ekki innan 3 daga. Við notkun handa börnum er nauðsynlegt að verja eyrað með bómull. 

OTODUAL er ekki fyrir börn yngri en 6 mánaða. Eingöngu til útvortis notkunar. Læknir á að fylgjast með meðferðinni.

Tengdar vörur