Pharmaceris Sensi Protect Daily Protective lotion for face and eye area SPF 50+

Pharmaceris S DAILY PROTECTIVE EMULSION SPF 50+ DRY TOUCH. Fislétt fyrir andlit og augnsvæði með hýalúrónsýru. Fljótandi sólarvörn DRY-TOUCH sem er sérlega létt og mælt til daglegra nota á andlit og á viðkvæmt augnsvæðið (örugg fyrir augnsvæði, prófuð af augnlæknum). 

Vörunúmer: 10170188
+
3.299 kr
Vörulýsing

Veitir mikla breiðvirka SPF50+ vörn gegn skaðlegum geislum um leið og að veita góðan raka. Mælt er með formúlunni fyrir viðkvæma og ofnæmishúð, blandaða húð húð sem hefur tilhneigingu til að vera feit. Hentar sérlega vel í útivist.
Létt formula sem fer fljótt inn í húðina og skilur hana eftir þurra viðkomu. Hýalúrónsýra gefur góðan raka og bætir stinnleika húðarinnar. Antileu-DNAprotect styrkir ónæmisvörn húðarinnar og verndar DNA húðarinnar gegn skemmdum af völdum UV geislunar.  E vítamín og allantóín örva endurnýjun og veita vörn gegn sindurefnum og hægir á öldrun vegna sólarljóss. Sólarvörnin hentar augnsvæðinu vel EYE-SAFE. Það hefur verið staðfest með prófum sem gerðar eru undir eftirliti augnlæknis. Formúlan er örugg fyrir vatnsumhverfið.

  • Hýalúrónsýra - efni sem tengir kollagen og elastín trefjar í húðinni og spornar gegn öldrun húðarinnar. Það bindur vatn fullkomlega í húðþekju, veitir húðinni raka, bætir mýkt og þéttleika um leið og að vernda húðina gegn áhrifum óhagstæðra utanaðkomandi þátta.
  • Antileu-DNAprotect - gullþörungaþykkni styrkir ónæmisvörn húðarinnar og verndar frumur gegn DNA skemmdum af völdum UV geislunar.
  • E-vítamín - svokallað ungmennavítamín með öflug andoxunaráhrif, verndar gegn sindurefnum og óhagstæðum utanaðkomandi þáttum. Dregur úr hrukkum, veitir raka og örvar endurnýjunarferli húðarinnar og uppbyggingu.
  • Allantoin – Sefar og róar húðina um leið og það veitir raka. Það hefur endurnýjunaráhrif (dregur úr roða, róar brennandi tilfinningu, örvar frumuefnaskipti) og bólgueyðandi áhrif.
  • Breiðvirk vörn – veita breiðvikra vörn gegn sólargeislun: UVB, UVA, IR (innrautt) og HEV (sýnilegt ljós).
Innihald

Aqua (Water), Methylene Bis-Benzotriazolyl Tetramethylbutylphenol (nano), Dibutyl Adipate, Diethylamino Hydroxybenzoyl Hexyl Benzoate, Propanediol, Bis-Ethylhexyloxyphenol Methoxyphenyl Triazine, C12-15 Alkyl Benzoate, Glycerin, Phenoxyethyl Caprylate, Potassium Cetyl Phosphate, Cetyl Alcohol, Silica, 1,2-Hexanediol, Butyrospermum Parkii (Shea) Butter, Ethylhexyl Triazone, Glyceryl Stearate, Allantoin, Lonicera Caprifolium (Honeysuckle) Flower Extract, Lonicera Japonica (Honeysuckle) Flower Extract, Sodium Hyaluronate, Laminaria Ochroleuca Extract, Tocopheryl Acetate, Tocopherol, Hydrogenated Dimer Dilinoleyl / Dimethylcarbonate Copolymer, Canola (Canola) Oil, Caprylic/Capric Triglyceride, Helianthus Annuus (Sunflower) Seed Oil, Acrylates/C12-22 Alkyl Methacrylate Copolymer, Aluminum Starch Octenylsuccinate, Decyl Glucoside, Acrylates/C10-30 Alkyl Acrylate Crosspolymer, Sodium Carbonate, Chondrus Crispus (Carrageenan), Citric Acid, Arginine, Coco-Glucoside, Xanthan Gum, Propylene Glycol, Disodium Lauryl Sulfosuccinate, Ethylhexylglycerin

Tengdar vörur