Poo Pourri lyktarsprey Fresh Air 59 ml.

Fresh Air er þægileg blanda af Jasmin og myntu ilmkjarnaolíum sem útrýmir vondri lykt inni á salerni áður en hún kemur. Nú getið þið gert ykkar þarfir án þess að skilja eftir illa lyktandi salerni.

Vörunúmer: 10170230
+
1.798 kr
Vörulýsing

Það sem gerir Poo-pourri frábrugðið öðrum ilmspreyjum er að það inniheldur aðeins náttúruleg efni. Okkur er annt um heilsu þína, klósettið þitt og þennan dýrmæta heim sem við kúkum í.  Þess vegna notum við engin hörð aukaefni heldur einungis náttúrlega gott stöff sem kæfir fýluna (og já smá töfra). Poo Pourri er bæði gott fyrir þig og náttúruna.

Notkun

Hristið vel áður en þið opnið vöruna.

Spreyið 3-5 sinnum í klósettið áður en þið setjist.

Svo getið þið gert “númer 2” áhyggjulaus.

Innihald

Athugið: Inniheldur engin paraben eða phthalates. Forðist snertingu við augu. Eingöngu ætlað fyrir ytri notkun. Notið í vel loftrýmdu svæði. Geymið þar sem börn ná ekki til. Ekki prófað á dýrum (bara illalyktandi mannfólki).

Tengdar vörur