Prima sjálfspróf | Þvagfærasýking 3 stk.

Sjálfsprófið gefur til kynna hugsanlega sýkingu í þvagi með því að skoða hvítfrumur, blóð, nítrít eða prótein í þvagi. Einkennin geta verið margkonar eins og sviði, stöðug löngun til að pissa og í alvarlegri tilfellum verkir í mjóbaki, hiti og flensa. Ráðlagt er að nota fyrsta þvagið að morgni. (miðbunu).

 

Vörunúmer: 10166473
+
2.290 kr
Vörulýsing

Almennt á sýkingin upptök sín í þvagrásinni og nær síðan til efri þvagrásar þar til hún fer í nýrun. Það eru aðallega konur sem fá þvagfærasýkingu vegna stuttra þvagrása. Karlar fá sýkingu aðallega á efri árum vegna stækkunar á blöðruhálskirti sem getur komið í veg fyrir þvaglát. Framkvæma skal prófið ef eitt eða fleiri eftirtalinna einkenna koma fram: tíð þvaglát, sviði við þvaglát, gruggugt og/eða illa lyktandi þvag.


Notkun

Hvernig á að framkvæma próf?

  1. Notist við fyrsta þvag morgunsins. 
  2. Takið prufu ræmu úr álpoka
  3. Dýfið ræmunni í þvagsýnið í 1-2 sek
  4. Bíðið í 2 mín eftir niðurstöðu
     
  • Hvítfrumu nákvæmni 97,6%
  • Blóðfrí blóðrauða nákvæmni 96%
  • Prótein nákvæmni 88%
  • Nítrít nákvæmni 100%
Innihald

Í einum kassa fylgir:

  • 3 prófræmur
  • 1 litatafla
  • Leiðbeiningar um notkun

Tengdar vörur