Bragðgott næaringarger. Kal næringargerið er látið vaxa á melassa. Á þann hátt er hægt að framleiða gerflögur sem innihalda mikið af amínósýrum og B-vítamíni. Næringarflögurnar eru ósætar, óerfðabreyttar og náttúrulega lágar í salti og fitu.
Kal næringargerið er er sérstaklega b-vítamínbætt fyrir aukið næringargildi. Venjulegt næringarger er oft framleitt með gerjunaraðferðum sem skilja eftir sig biturt eftirbragð sem fæstum geðjast að. Kal Næringar gerið er látið vaxa á melassa, er algerlega náttúrulegt og hefur ekkert eftirbragð sem skín í gegn. Prófið ykkur áfram með þessa næringarbombu! Gott á popkorn, eða yfir morgunkorn, og í matargerð, mikið notað í grænmetis og hráfæðisrétti. Laust við: Hveiti, korn, mjólk, soja, glútein, dýraafurðir, litarefni, sterkju og rotvarnarefni.
Ábyrgðaraðili: Heilsa ehf.