Thealoz Duo Gel ambúlur 30 stk.

Fyrsta samsetningin af trehalósa, hýalúronsýru og karbómer í gelformi og gefur ennþá lengri virkni í samanburði við augndropa. Þess vegna hentar gelið einstaklega vel á nóttunni þegar tárafilman er í minni virkni sem og á daginn þegar augun þurfa extra hjálp til að viðhalda raka.

Vörunúmer: 974338
+
3.359 kr
Vörulýsing
  • Einstök samsetning af trehalósa, hýalúronsýru og karbómer.
  • Mjúkar umbúðir – auðvelt að meðhöndla.
  • Klístrast ekki – auðvelt að skammta í augað.
  • Sérstaklega milt fyrir augun.
  • Mælt með fyrir augnlinsur.
  • Án rotvarnarefna.
  • Dauðhreinsaðar einnota ambúlur.


Á nóttinni minnkar virkni tárafilmunnar sem veldur því að einkenni augnþurrks verða verri eftir að augunum er lokað, óháð því hvernig einkennin voru fyrir svefn. Karbómer gerir það að verkum að gelið endist lengur en dropar og hentar því einstaklega vel til stuðnings á nóttunni en má að sjálfsögðu nota yfir daginn líka.


Notkun

Einn dropi í hvort auga fyrir nóttina eða 2-4 sinnum yfir daginn.

Tengdar vörur