Unaður í öskju fyrir píku

Lyfja býður þér í samstarfi við Blush Unað í öskju. Heilbrigði snýst um vellíðan. Hlustaðu á líkama þinn, enginn þekkir hann eins vel og þú. Unaður í öskju fyrir typpi styður við þitt kynheilbrigði með völdum vörum sem henta einstaklega vel til að njóta með sjálfum þér eða öðrum.

Vörunúmer: 10168672
+
13.990 kr
Vörulýsing

Forleikur er spil fyrir öll pör sem vilja opna umræðuna um kynlíf í sínu sambandi. Í stokknum eru 51 spil sem innihalda bæði spurningar og verkefni. Spilið er fjörug og skemmtileg leið til þess að kynnast betur og auka kynferðislega spennu.

Titrarinn er einstaklega mjúkur og sveigjanlegur sem örvar snípinn eða leggöngin.  Þrýstu á reset takkann á tækinu þegar þú færð fullnægingu og finndu hvernig tækið fer strax í lægstu stillingu. Með mildum og léttum titring getur þú notið fullnægingarinnar lengur og upplifir dýpri og meiri unað.

Vatnssleipiefnið hentar í sjálfsfróun eða kynlífi, með eða án kynlífstækja. Það er mjúkt viðkomu, klístrast ekki og er auðvelt að þrífa af með vatni. Sleipiefnið hentar einnig með öllum tegundum smokka.

Tengdar vörur