Alessandro
Alessandro tekur litapallettuna af tískupöllunum og kemur trendunum hratt til skila með fallegum litum í takt við tískustrauma. Naglalökkin eru vegan og laus við sex af algengustu skaðlegu innihaldsefnunum sem oft leynast í naglalökkum. Formúlan inniheldur einnig ýmis efni sem styrkja og næra neglurnar. Aðeins þarf tvær þunnar umferðir og yfirlakk, lökkin þurfa ekki undirlakk.
Alessandro naglalökkin eru vegan og þau innihalda ekki dibutyl phthalate, toluene, formaldehyde, formaldehyde resin, camphor eða paraben.