OptiBac
Góðgerlar fyrir bætta þarmaflóru. OptiBac góðgerlar stuðla að heilbrigðu jafnvægi baktería í þörmunum. Optibac eru sérfræðingar í góðgerlum og sérhæfir fyrirtækið sig eingöngu í þeim. Góðgerlarnir eru á meðal þeirra mest rannsökuðu í heiminum og að baki hverrar vöru liggja fjölmargar klínískar rannsóknir á sérvöldum vinveittum bakteríum sem eru sérhæfðar til að vinna gegn ákveðnum vandamálum.
Sérstaða fyrirtækisins liggur fyrst og fremst í ítarlegum klínískum rannsóknum ásamt þróun sérhæfðra vara sem beinast að ákveðnum vandamálum. Hér er því ekki um eina vöru að ræða sem á að gera allt fyrir alla heldur er sérhæfingin og sérstök samsetning hverrar vöru lykillinn að árangri Optibac ásamt því að allar vörurnar hafa sannaða virkni. Auk þess innihalda allar vörurnar lifandi góðgerla sem sannað hefur verið að þola magasýrur og sölt og komast því lifandi niður í smáþarmana þar sem einstök virkni þeirra hefst. Optibac þarf ekki að geyma í kæli.