OptiBac For those on antibiotics inniheldur tvo virka og vel rannsakaða gerla sem þola að vera teknir á sama tíma og sýklalyfin. Hentar því ákaflega vel fyrir þá sem vilja forðast aukaverkanir sem margir fá samhliða sýklalyfjakúr eins og t.d., hægðatregðu, niðurgang, sveppasýkingu og veikingu á ónæmiskerfi. Rannsóknir sýna að 1 af hverjum 5 hættir að taka sýklalyfin vegna aukaverkana. Með því að endurnýja góðu bakteríurnar meðan á venjulegum 5-7 daga sýklalyfjakúr stendur, er komið í veg fyrir oföxt á óæslilegri germyndun og vondum bakteríum sem geta valdið ýmsum vandamálum eins og niðurgangi og sveppasýkingu.
Ábyrgðaraðili: Heilsa ehf.