Sinomarin
Sinomarin er fjölskyldufyrirtæki, staðsett á Grikklandi. Það á sögu sína að rekja til 1923 og er með yfir 20 ára reynslu af hypertónískum lausnum. Hypertónísk lausn þýðir að saltmagnið í blöndunni er hærra en í líkamanum. Blöndurnar samanstanda af 70% sjó og 30% vatni. Sinomarin eru 100% náttúrleg nefsprey. Hlutverk Sionmarin er að þynna slím, draga úr bólgum, hreinsa nefhol og veita vörn gegn efri öndunarfærasýkingum og fylgikvillum.