Florealis Lyngonia við vægum þvagfærasýkingum hjá konum 60 töflur.

Lyngonia er viðurkennt jurtalyf við endurteknum þvagfærasýkingum hjá konum, án sýklalyfja. Lyngonia er skráð í sérlyfjaskrá sem jurtalyf sem hefð er fyrir og inniheldur útdrátt úr sortulyngi. Hver tafla er  stöðluð fyrir virka efninu arbútíni (105 mg) sem hefur örverudrepandi eiginleika og virkar staðbundið í þvagrásinni. Lyngonia verkar því sértækt á vægar þvagfærasýkingar.

Vörunúmer: 127403
+
5.629 kr
Vörulýsing

Jurtalyfið er ekki ætlað til að nota í fyrirbyggjandi tilgangi heldur skal byrja að taka Lyngonia um leið og einkenna verður vart svo sem brunatilfinning við þvaglát eða aukin þvaglát.

Lyngonia er selt án lyfseðils og er sérstaklega ætlað konum sem eru gjarnar á að fá þvagfærasýkingar. Jurtalyfið er staðlað með tilliti til virkra efna í jurtinni sem tryggir að neytandinn fær alltaf réttan skammt í hverri töflu. Lyngonia er framleitt undir GMP aðstæðum sem tryggir virkni, gæði og áreiðanleika jurtalyfsins.

Notkun

Notkun: 2 töflur 2-4 sinnum á dag fyrir fullorðnar og aldraðar konur. Lyngonia á ekki að nota lengur en 1 viku í einu, séu einkenni viðvarandi í meira en 4 daga eða versna við notkun skal leita ráðlegginga læknis.

Lyngonia er jurtalyf sem hefð er fyrir og notað til að draga úr einkennum vægrar, endurtekinnar sýkingar í neðri hluta þvagfæra, svo sem brunatilfinningu við þvaglát og/eða auknum þvaglátum hjá konum, eftir að alvarleg veikindi hafa verið útilokuð af lækni. Ekki nota Lyngonia ef þú ert með truflun á nýrnastarfsemi. Hvorki ætlað þunguðum konum né konum með barn á brjósti, körlum eða börnum og unglingum yngri en 18 ára. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.florealis.is og www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi er Florealis ehf.

Innihald

Hver tafla inniheldur útdrátt úr Arctostaphylos uva-ursi (L.) Spreng., folium (sortulyngslauf), sem jafngildir 105 mg af hýdrókínónafleiðum, reiknað sem vatnsfrítt arbútín. 

Tengdar vörur