Saga Natura AstaEye 60 hylki

AstaEye er hannað til þess að viðhalda augnheilsu og koma í veg fyrir hrörnun augnbotna. Íslenskt astaxanthin, lutein og zeaxanthin gegna lykilhlutverki í formúlunni auk vítamína og steinefna úr AREDS2 augnrannsókninni.

Vörunúmer: 10154626
+
4.399 kr
Vörulýsing

Hvað er Astaxanthin?

  • verndar húðina fyrir sólargeislum og dregur þar með úr ótímabærri öldrun húðarinnar þar sem hún heldur betur í raka og er teygjanlegri. Húðin þornar því síður og hrukkast eins og gerist hjá flestum þegar aldurinn færist yfir
  • hefur sýnt fram á jákvæð áhrif á úthald og orku þar sem efnið eykur þrek og vöðvamyndun við æfingar auk þess sem það veitir betri endurheimt vöðva eftir átök
  • hefur ýmis jákvæð áhrif á hjarta- og æðakerfi en það getur dregið úr myndun á vonda kólesterólinu og aukið við það „góða“, auk þess sem það hefur jákvæð áhrif á blóðflæði og minnkar bólgur
  • hefur gefið góða raun vegna stirðleika í liðum ásamt því að draga umtalsvert úr liðaverkjum 
  • hefur jákvæð áhrif á augnheilsu því efnið verndar augnbotnana og getur því hjálpað til við augnþreytu, þurrk og minnkað eða hægt á augnhrörnun sem svo margir upplifa með hækkandi aldri

Hreinleiki og gæði Astaxanthin haldast í hendur við framleiðsluaðferðir og framleiðsluaðfanga, t.a.m. vatn. Því var lykilatriði að koma upp framleiðslutækni sem tryggði 100% hreinleika, 100% gæði og skildi eftir sig sem minnsta kolefnisfótspor sem við höfum náð með góðum árangri þar sem við notumst við hreint íslenskt vatn og íslenska orku í framleiðsluferlinu.

Hver dagsskammtur inniheldur:

  • Astaxanthin 4 mg – Fjöldi rannsókna sýna fram á að andoxunarefnið astaxanthin sé mikilvægt til þess að viðhalda augnheilsu.
  • Lutein 10 mg – Zeaxanthin 2 mg – rannsóknir sýna að lutein og zeaxanthin séu mikilvæg fyrir augnþroska, sjón fullorðinna, auk þess sem að koma í veg fyrir augnbotnahrörnun seinna á ævinni.
  • C-vítamín 500 mg (625% NV) – andoxunarefni, dregur úr líkum á augnbotnahrörnun og ský á auga
  • E-vítamín 270 mg (2250% NV) – andoxunarefni, dregur úr líkum á augnbotnahrörnun og ský á auga
  • Kopar 2 mg (200% NV) – kemur í veg fyrir blóðleysi tengt sink inntöku
  • Sink 25 mg (250% NV) – Sink er mikilvægt fyrir melanín myndun í augum.


Ábyrgðaraðili: SagaNatura ehf.

Notkun

Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 2 hylki á dag með mat.

Innihald

Hrísgrjónamjöl, AstaKeyTM Astaxanthin ríkir smáþörungar (Haematococcus pluvialis), lútein og zeaxanthin (úr morgunfrú), askorbín sýra (C-vítamín), d-alfa-tókóferýl súkkínat (E-vítamín), hylki úr jurtabeðmi (HPMC), sink oxíð, kopar oxíð.

Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 2 hylki á dag með mat.
Pakkningarstærð: 60 hylki.
Geymist á þurrum, svölum stað þar sem börn ná ekki til.

Ekki er ráðlagt að neyta meira af vörunni er ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu.
Barnshafandi konum, konur með barn á brjósti, börn undir 18 ára aldri og fólk með sjúkdóma er ávalt ráðlagt að leita álits læknis eða annars sérfræðings áður en tekin eru inn fæðubótarefni.

Tengdar vörur