ChitoCare Beauty Anti-Aging andlitstvenna

Gjafaaskja sem inniheldur Chitocare Face Cream og Beauty Anti-Agin Repair Serum

Vörunúmer: 10164133
+
20.299 kr
Vörulýsing

Face Cream:
Dag- og næturkremið er einstök samsetning náttúrulegra afurða úr Norður-Atlantshafi. Kremið ver húðina, er öflugur rakagjafi, eykur teygjanleika og sléttir yfirborð húðarinnar.

Kremið inniheldur SPF 15 sólarvörn og mikilvæg andoxunarefni sem vernda húðina gegn skaðlegum umhverfisþáttum, m.a. útfjólubláum geislum sólar og bláu ljósi frá tölvu- og snjalltækjaskjám. Þessi vörn varðveitir æskuljóma húðarinnar og ver hana fyrir ertingu og ótímabærum skaða.

Frábærir eiginleikar:
• SPF 15 sólarvörn
• Verndar húðina
• Stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar

Hentar vel á allar húðgerðir sem og exemkennda og viðkvæma húð.

Ný klínísk rannsókn sýnir að ChitoCare beauty Anti-Aging Repair Serum og ChitoCare beauty Face Cream, notað kvölds og morgna í sex vikur, hefur marktæk áhrif á húðina:
• Húðraki eykst um 16%
• Þéttleiki húðar eykst um 22% 
• Teygjanleiki húðar eykst um 7% 

Grófleiki húðarinnar minnkar verulega:
• 19% minnkun á fínum húðlínum
• 17% minnkun á djúpum hrukkum

Beauty Anti-Agin Repair Serum:
ChitoCare Beauty Anti-Aging Repair Serum inniheldur lífvirka efnið kítósan úr hafinu við Íslandsstrendur og hýalúrunsýru sem dregur úr fínum línum og öldrunarmerkjum af völdum áhrifa eins og mengunar og streitu. 

Kítósan er náttúrulegt undur úr hafinu sem ver húðina þína, dregur úr roða og pirringi, viðheldur raka og gefur húðinni silkimjúka áferð. Eiginleikar kítósans eru meðal annars græðandi áhrif auk þess að vera bakteríudrepandi og öflug vernd fyrir húðina.

Anti-Aging Repair Serum frá ChitoCare Beauty endurnærir húðina og gefur henni mjúka og unglega áferð.

NOTKUN
Berið mjúklega á andlit og háls. Anti-Aging Repair Serum frá ChitoCare Beauty er tilvalið til að nota að morgni og kvöldi eða eftir því sem þörf krefur.

FLOTT SAMAN
Til að auka mýkt og sveigjanleika húðarinnar mælum við með því að nota Face Cream frá ChitoCare Beauty reglulega til viðbótar við Anti-Aging Repair Serum til að verja og endurnæra húðina. Þannig nærðu að viðhalda unglegu útliti og útgeislun!

Ný klínísk rannsókn sýnir að ChitoCare Beauty Anti-Aging Repair Serum og ChitoCare Beauty Face Cream, notað kvölds og morgna í sex vikur, hefur marktæk áhrif á húðina:
• Húðraki eykst um 16%
• Þéttleiki húðar eykst um 22% 
• Teygjanleiki húðar eykst um 7%

Grófleiki húðarinnar minnkar verulega:
• 19% minnkun á fínum húðlínum
• 17% minnkun á djúpum hrukkum

Innihald

Face Cream:
INGREDIENTS: AQUA, GLYCINE SOJA (SOYBEAN) OIL, 4-METHYLBENZYLIDENE CAMPHOR, BUTYL METHOXYDIBENZOYLMETHANE, GLYCERYL STEARATE CITRATE, OCTOCRYLENE, GLYCERIN, MYRISTYL ALCOHOL, SODIUM LACTATE, COCOS NUCIFERA (COCONUT) OIL, MACADAMIA TERNIFOLIA SEED OIL, PHENOXYETHANOL, CETEARYL ALCOHOL, PROPANEDIOL, SODIUM STEAROYL GLUTAMATE, PARFUM, XANTHAN GUM, TOCOPHERYL ACETATE, LACTIC ACID, BENZYL ALCOHOL, ETHYLHEXYLGLYCERIN, ALOE BARBADENSIS LEAF JUICE POWDER, GLYCERYL CAPRYLATE, CHITOSAN, LIMONENE, LINALOOL, PSEUDOALTEROMONAS FERMENT EXTRACT, ALPHA-ISOMETHYL IONONE, BENZYL SALICYLATE, CITRAL, CITRONELLOL, GERANIOL, FARNESOL, ANISE ALCOHOL.

Anti-Age Serum:
INGREDIENTS: AQUA, PENTYLENE GLYCOL, GLYCERIN, SODIUM HYALURONATE, CHITOSAN, OPUNTIA FICUS-INDICA STEM EXTRACT, SODIUM PHYTATE, POLYGLYCERYL-10 LAURATE, LACTIC ACID, XANTHAN GUM, SCLEROTIUM GUM, LECITHIN, PULLULAN, SILICA, CITRIC ACID, PARFUM, PHENOXYETHANOL, ALCOHOL

Tengdar vörur