Clearlii Advanced mánaðarlinsur 6 stk.

Advanced eru hágæða silicon linsur sem hleypa háu flæði súrefnis til augna og stuðla þannig að hámarks þægindum og rakaflæði til augnanna við notkun​. Linsurnar eru þróaðar sérstaklega fyrir norrænt loftslag með UVA/UVB vörn. Mánaðarlinsurnar eru notaðar yfir daginn í allt að mánuð. Fjarlægðar að kvöldi og hreinsaðar til geymslu yfir nótt. UV vörn og mjúk þægindi.

KOMDU Í ÁSKRIFT AÐ LINSUM
Með áskrift færð þú 10% afslátt af þínum linsum og velur um heimsendingu eða að sækja í næstu verslun Lyfju. SMELLTU HÉR

Vörunúmer: 10164882
+
5.490 kr
Vörulýsing

Sex stykkja pakki dugar í þrjá mánuði fyrir tvö augu og sex mánuði fyrir eitt auga. Styrkleiki frá -7,00 til +3,00.

Ráðleggingar varðandi notkun augnlinsa:

  • Vera ávallt með hreinar hendur þegar linsa er sett í augu og tekin úr.
  • Alltaf fara eftir leiðbeiningum framleiðanda.
  • Alltaf nota nýjan vökva fyrir hreinsun og geymslu.
  • Skipta þarf um linsubox reglulega og halda því hreinu og þurru á milli notkunar.
  • Mælt er með að setja linsur í áður en annað er sett á augnsvæðið.
  • Mælt er með að nota sundgleraugu ef synt er með linsur.
  • Ekki sofa með linsur.
  • Fjarlægið linsur úr augum og hvílið ef þreyta eða pirringur myndast.


Notkun

Sex stykkja pakki dugar í þrjá mánuði fyrir tvö augu og sex mánuði fyrir eitt auga.

Linsur settar í:

  1. Passar þarf að linsan snúi ekki öfugt. 
  2. Leggið linsuna fremst á fingur annara handar.
  3. Leggið löngutöng sömu handar á neðir augnlok og togið niður.
  4. Notið löngutöng á hinni hendinni til að toga efri augnlok upp.
  5. Varlega leggið linsuna á augun og blikkið hægt þangað til hún fer á réttan stað.

Linsur teknar úr:

  1. Varlega lyftið upp báðum augnlokunum á sama hátt og þegar linsan er sett í og grípið með tveimur fingrum um linsuna.
  2. Dragið svo linsuna rólega úr.
     
  • Spyrja lækni. Mælt er með að tala við lækni ef viðkomandi er að skipta um linsur og/eða hann er ekki alveg öruggur á notkun linsa.
  • Sjónin breytist. Passa þarf að nota réttan styrkleika til að fá sem bestu sjónina.
  • Þvo hendur. Passa þarf að vera með hreinar hendur þegar linsur eru settar í og teknar úr.
  • Fylgja leiðbeiningum. Passa þarf að fylgja leiðbeningum og aldrei nota linsur sem eru runnar út á tíma.
Innihald
  • Grunnferilsradíus: 8.8 mm
  • Ummál: 14.1 mm
  • Efni: Silikon-hydrogel
  • Vökvainnihald: 50%

Tengdar vörur