Clearlii vítamín daglinsur 30 stk.

Clearlii vítamínríkar daglinsur eru nýjasta viðbótin í vöruval Clearlii enn þær  eru hágæða linsur sem koma í vítamínbættum linsuvökva sem hjálpa til við að draga úr augnþreytu og veita aukin þægindi.​ Einstakt lag linsunnar tryggja góðan raka og minni  ertingu þegar blikkar.​ Linsurnar eru þróaðar sérstaklega fyrir norrænt loftslag með UVA/UVB vörn. Linsurnar innihalda E, B6 og B12 vítamín auk hyaluronic acid.

KOMDU Í ÁSKRIFT AÐ LINSUM
Með áskrift færð þú 10% afslátt af þínum linsum og velur um heimsendingu eða að sækja í næstu verslun Lyfju. SMELLTU HÉR

Vörunúmer: 10164880
+
3.998 kr
Vörulýsing

Linsurnar  einnota. 30 stk í pakka sem dugar fyrir 15 daga ef notað í bæði augu.​ Styrkleiki frá -7,00 til +4,00​.

Ráðleggingar um notkun augnlinsa:

  • Vera ávallt með hreinar hendur þegar linsa er sett í augu og tekin úr.
  • Alltaf fara eftir leiðbeiningum framleiðanda.
  • Alltaf nota nýjan vökva fyrir hreinsun og geymslu.
  • Skipta þarf um linsubox reglulega og halda því hreinu og þurru á milli notkunar.
  • Mælt er með að setja linsur í áður en annað er sett á augnsvæðið.
  • Mælt er með að nota sundgleraugu ef synt er með linsur.
  • Ekki sofa með linsur.
  • Fjarlægið linsur úr augum og hvílið ef þreyta eða pirringur myndast.

Spurningar og svör
 

  1. Skaða linsur augun?
    Nei, linsurnar eru hannaðar til að auka sjónina ekki gera hana verri.
     
  2. Eru óþæginlegt að hafa linsur?
    Nei, linsur eins og Clearlii eru hannaðar til að veita raka yfir daginn, falla vel að augunum og eru mjög mjúkar.
     
  3. Má þvo linsurnar með vatni?
    ​Nei, aldrei þvo linsur með vatni, það gerir þær þurrar og hrjúfar. Einnig eru bakteríur í vatni sem geta valdið óþægindum.
     
  4. Má vera með linsur á æfingum?
    Já, það er t.d mjög gott fyrir íþróttafólk að vera með linsur á æfingum.
Notkun

Sex stykkja pakki dugar í þrjá mánuði fyrir tvö augu og sex mánuði fyrir eitt auga.

Linsur settar í:

  1. Passar þarf að linsan snúi ekki öfugt. 
  2. Leggið linsuna fremst á fingur annara handar.
  3. Leggið löngutöng sömu handar á neðir augnlok og togið niður.
  4. Notið löngutöng á hinni hendinni til að toga efri augnlok upp.
  5. Varlega leggið linsuna á augun og blikkið hægt þangað til hún fer á réttan stað.

Linsur teknar úr:

  1. Varlega lyftið upp báðum augnlokunum á sama hátt og þegar linsan er sett í og grípið með tveimur fingrum um linsuna.
  2. Dragið svo linsuna rólega úr.
     
  • Spyrja lækni. Mælt er með að tala við lækni ef viðkomandi er að skipta um linsur og/eða hann er ekki alveg öruggur á notkun linsa.
  • Sjónin breytist. Passa þarf að nota réttan styrkleika til að fá sem bestu sjónina.
  • Þvo hendur. Passa þarf að vera með hreinar hendur þegar linsur eru settar í og teknar úr.
  • Fylgja leiðbeiningum. Passa þarf að fylgja leiðbeningum og aldrei nota linsur sem eru runnar út á tíma.
Innihald
  • Grunnferilsradíus: 8.5 mm
  • Ummál: 14.2 mm
  • Efni: Etafilcon A
  • Vatnsinnihald: 58%
  • Magn: 30 stk.

Tengdar vörur